Tryggingastofnun
Listin að lifa

Listin að lifa: Tekjuáætlun og fjármagnstekjur

október 2006

Um þessar mundir endurreiknar Tryggingastofnun bótafjárhæðir á grundvelli framtalinna tekna. Þegar lífeyrisþegum berast niðurstöðurnar vakna gjarnan spurningar sem hér er leitast við að svara.

Ef í ljós kemur við endurreikningin að misræmi er á milli þeirra greiðslna sem inntar hafa verið af hendi og raunverulegs bótaréttar, fer fram uppgjör þar sem bótafjárhæðir eru leiðréttar. Uppgjörið sem nú stendur yfir er það þriðja í kjölfar nýrrar lagasetningar, og að sögn starfsfólks TR virðast lífeyrisþegar að venjast þessu nýja fyrirkomulagi. Þó er rétt að minna á ýmis atriði varðandi uppgjör tekjutengdra bóta og benda viðskiptavinum TR á nokkra fróðleiksmola til að forðast of- og vangreiðslur.

Tekjuáætlun

Eins og áður sagði greiðir Tryggingastofnun ellilífeyrisþegum bætur í hverjum mánuði eftir áætluðum árstekjum hvers og eins. Áætlunin byggir á nýjustu tekjuupplýsingum sem stofnunin hefur handbærar, sem eru yfirleitt nýjasta skattframtal og/eða síðasta tekjuáætlun ellilífeyrisþegans. Við gerð áætlunarinnar er tekið mið af spám um vísitöluhækkanir tekna á komandi ári. Þessi tekjuáætlun er lögð til grundvallar við útreikning bóta komandi árs og því er afar mikilvægt að til hennar sér vandað. Ábyrgð á innihaldi tekjuáætlunarinnar, og að hún sé rétt, hvílir á lífeyrisþeganum. Starfsfólk Tryggingastofnunar bendir ellilífeyrisþegum að fara mjög vandlega yfir tekjuáætlun sína og tilkynna allar breytingar. Eftirfarandi atriði er gott að hafa í huga:

  • Til að tryggja að bætur séu réttar geta ellilífeyrisþegar skilað inn skattframtali á réttum tíma sem útfyllt hefur verið á fullnægjandi hátt, og mikilvægt er að tilkynna Tryggingastofnun um allar breytingar sem verða á tekjum.
  • Til að auðvelda lífeyrisþegum að fylgjast með tekjuáætlun sinni er hún prentuð á bakhlið hvers greiðsluseðils. Þannig geta ellilífeyrisþegar séð gildandi áætlun í hverjum mánuði og metið hvort tilkynna þurfi breytingar á henni. Eyðublaðið „Tilkynning um breyttar tekjur“ er að finna í þjónustumiðstöð TR, umboðum um land allt og á vefnum: www.tr.is.

Mikilvægt er að athuga hvort einhverja tekjuliði vanti í tekjuáætlun Tryggingastofnunar, til dæmis ef áætlað er að hefja töku lífeyris úr lífeyrissjóðum á næsta ári, innleysa lífeyrissparnað eða selja eignir sem skila fjármagnstekjum. Best er að áætla þær tekjur sem af þessu kunna að skapast en skila svo nýrri tekjuáætlun þegar endanlegar tölur liggja fyrir. Lífeyrisþegi þarf ávallt að undirrita tekjuáætlun, en maki þarf aðeins að undirrita ef áætlun hans er breytt. Hjón og sambúðarfólk sem bæði fá greiddan lífeyri fá senda sitt hvora tekjuáætlunina. Þeim er þó heimilt að skila einni áætlun sameiginlega, með undirritun beggja.

Hafi maki lífeyrisþega ekki veitt Tryggingastofnun heimild til að afla upplýsinga um tekjur sínar útbýr stofnunin ekki tekjuáætlun fyrir hann. Ef tekjuáætlun er endursend með upplýsingum um tekjur maka, getur stofnunin ekki tekið mið af þeim við útreikning bóta nema undirrituð heimildaryfirlýsing fylgi með. Eyðublað fyrir slíka yfirlýsingu er að finna á heimasíðunni www.tr.is, hjá umboðum og í þjónustumiðstöð og heitir „Heimild til upplýsingaöflunar“.

Stefnt er að því að senda tekjuáætlanir út í vikunni 20.- 24. nóvember og frestur til að skila verður veittur til 12. des.

Fjármagnstekjur

Fjármagnstekjur eru helst tekjur af fasteignum og lausafé, söluhagnaður af hlutabréfum, vextir af innlendum innistæðum í bönkum og sparisjóðum, vextir af verðbréfum sem útgefin eru af ríkissjóði, skyldusparnaði, arður af hlutabréfum og arður og vextir af stofnsjóðseign. Fjármagnstekjur hjóna og sambúðarfólks eru skráðar sameiginlega. Athuga þarf að fjármagnstekjur eru í eðli sínu sveiflukenndar, einkum þegar um er að ræða sölu hlutabréfa eða annarra eigna. Því þarf að huga vel að útfyllingu þessa reits í tekjuáætluninni. Einnig er mikilvægt að láta Tryggingastofnun vita ef síðar verða breytingar á fjármagnstekjum frá því sem nú er áætlað. Varðandi söluhagnað í tekjuáætlun, þá er mikilvægt að reyna að vanáætla hann ekki eða gleyma að tilkynna því það getur valdið ofgreiðslum. Um er að ræða allan áætlaðan skattskyldan söluhagnað eins og hann mun færast á skattframtal.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica