Laila Arnþórsdóttir
Með aukinni netvæðingu hefur aðgengi að upplýsingum stóraukist. Er það ánægjulegt að geta sagt frá því, að sem starfandi ráðgjafi í Félagi heyrnarlausra nota ég vef Tryggingastofnunar oft á dag. Þetta sparar mikinn tíma og fyrirhöfn og bætir alla þjónustu við félagsmenn sem leita eftir upplýsingum um málefni sem tengjast bótum Tryggingastofnunar og fleira.Þess ber að geta að vegna sérstöðu sinnar eiga heyrnarlausir oft erfitt með að skilja upplýsingar á íslensku ritmáli þar sem íslenska er þeirra annað mál en táknmál er þeirra móðurmál. Oft eru upplýsingarnar á mjög formlegri íslensku og er það mjög algengt að félagsmenn leiti til Félags heyrnarlausra þegar þau skilja ekki almennilega þau bréf sem þeim berast frá stofnuninni. Þá hefur oft verið ákaflega gott að leita frekari upplýsinga á heimasíðu Tryggingastofnunnar. Fyrir það ber að þakka.
En aldrei er svo að ekki megi betur gera. Þannig er að með aukinni tækni er nú mögulegt að bjóða upp á táknmálsviðmót en það er þegar íslenskur texti er þýddur yfir á íslenskt táknmál og er fluttur sem lifandi mynd á skjánum. Þannig fá heyrnarlausir upplýsingarnar milliliðalaust á sínu máli.
Það getur aldrei talist annað en besti kosturinn þegar fólk fær upplýsingarnar á sínu móðurmáli. Nú þegar hefur aðgengi minnihlutahópa verið stórlega bætt svo sem upplýsingar á hinum ýmsu tungumálum og möguleika á stækkuðu letri og breyttum bakgrunni sem hentar sjónskertum og er það ánægjulegt fyrir þá sem þess þurfa.
Laila Margrét skorar á Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur Samfylkingunni, 8. þingmann Reykjavík suður, að vera næst „Í sigtinu”
Laila Arnþórsdóttir er ráðgjafa hjá Félagi heyrnarlausra.
