Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir
Við sem erum í velferðarnefnd ASÍ höfum á þessu ári verið að fylgjast mjög náið með velferðarmálum og þróun þeirra á undanförnum misserum. En ein hlið þeirra er lyfjakostnaður vegna barnafjölskyldna. Það verður að segjast eins og er að lyf fyrir börn eru mjög dýr og valda foreldrum oft gríðarlegum erfiðleikum. Við höfum vitneskju um að fjöldi foreldra á í erfiðleikum með kostnað vegna veikinda barna og lyfja fyrir þau. Samkeppnin er lítil sem engin og mörg lyf sem eru börnum nauðsynleg ekkert niðurgreidd. Fólk á ekki auðvelt með að finna út verðmun milli lyfjaverslana og tekst fáum að hafa upp á hvar ódýrast er að finna tiltekið lyf.
Samkeppnin lítil sem engin
Segja má að samkeppnin sé einna helst þannig að mjög margir kaupa lyf erlendis og færist það í vöxt en það hafa ekki allir tök á því. Reynsla margra er þannig að t.d. ofnæmislyf sem ekki eru lyfseðilsskyld en eru samt þau lyf sem barnið verður að fá til að komast í gegnum dag að sumri til þegar frjókornaofnæmi er í hámarki geta kostað yfir 5000 kr. Mörg börn eru með aðrar tegundir ofnæmis sem þau þurfa að lifa með daglega allt árið og kostar það sitt. Ef þessi sömu lyf eru keypt erlendis þá getur munað helming eða meira. Ýmis önnur dæmi um lyfjakostnað eru svo sannarlega til staðar og má þar nefna eyrnarbólgur, ungbarnakveisur og astma hjá ungum börnum. Þegar margar læknisferðir og kostnaður við þær leggjast við þá tekur í buddduna hjá foreldrum. Samkvæmt upplýsinum í fjölmiðlum nýverið hafa lyfjaverslanir tök á auknum hagnaði með því að versla lyf í Suður - Evrópu á lægra verði. Vert er að benda á að vandi margra þessara foreldra er enn meiri vegna þess að þeir hafa ekki heimilislækni þar sem þeir eru of fáir og því fá þessir foreldrar ekki sömu þjónustu eins og ef um samfelld samskipti væri að ræða ætla má að með þessu skorti oft á upplysingaflæði til foreldra.
Tannlæknakostnaður
Það hefur ekki farið framhjá neinum að nýjar rannsóknir sýna að tannheilsa barna hefur versnað á undanförnum árum sem væntanlega má að miklu leiti rekja til þess að kostnaður barnafjölskyldna við að leita til tannlækna er þeim um megn. Það á að gera kröfu um að niðurgreiðsa sé aukin fyrir tannskoðanir og tannviðgerðir barna og ungmenna þar sem hornsteinninn er lagður að fratíðartannheilsu einstaklingsins ef vel er að verki staðið á barna- og unglingsárum. Forvarnir eru einnig mikilvægar og öll fræðsla um tannheilsu mikilvæg. Þá skiptir mataræði og sykurneysla þar miklu máli en við getum víst státað af því að vera meðal þeirra þjóða þar sem sykurneysla pr. mann er hvað mest.
Hvað er til ráða?
Skorað er á stjónvöld og lyfjanefnd að skoða þessi mikilvægu velferðarmál barna af mikilli alvöru og finna leiðir til að koma til móts við barnafólk með það að leiðarljósi að kostnaður við lyf verði með sambærilegum hætti og hjá nágrannaþjóðum. Þá er skorað á heilbrigðisráðherra og Tryggingastofnun og þá sem koma að tannheilsumálum barna að bretta upp ermar og koma þessum málum í viðunandi horf.
Þórunn skorar á Rögnu Marinósdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju, að vera næsta „Í sigtinu".
Þórunn Sveinbjörnsdóttir er verkefnastjóri hjá Eflingu stéttarfélagi.
