Tryggingastofnun
Störf hjá Tryggingastofnun

Störf hjá Tryggingastofnun

Hjá Tryggingastofnun, einni helstu miðstöð velferðarmála á Íslandi, starfa um 100 manns við að leysa flókin verkefni og veita stórum hópi landsmanna þjónustu.

Tryggingastofnun leggur áherslu á að hafa í sínum röðum hæft starfsfólk til að sinna þeim fjölbreyttu verkefnum sem stofnunin sinnir.

Starfsmönnum er boðið upp á fjölskylduvænt starfsumhverfi með sveigjanlegum vinnutíma.

Til að fá frekari upplýsingar um störf og starfsumhverfi Tryggingastofnunar, sendu póst á:

Fjölbreytt menntun og mikill mannauður

  • Hlutfall háskólamenntaðra starfsmanna TR hefur á 15 árum hækkað úr tæpum 20% í nærri 50%.

  • Hver ráðning er sjálfstætt verkefni sem hefst á að skilgreina starfið og hæfniskröfur þar að lútandi eins og starfsreynslu og menntun. Við veljum fólk sem nýtist best hverju sinni miðað við þær kröfur sem starfið felur í sér.

  • Hækkað menntunarstig starfsmanna Tryggingastofnunar felur í sér meðvitaða tilraun til að mæta síauknum kröfum og flóknari verkefnum.

  • Starfsemin er mun sérhæfðari og verkefnin meira krefjandi en áður, ekki síst á sviði lögfræði og fjármála.

Allar umsóknir um störf eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Öllum umsóknum er svarað.


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica