Um Tryggingastofnun
Um Tryggingastofnun
Tryggingastofnun heyrir undir velferðarráðuneytið og er ein stærsta þjónustustofnun landsins. Stofnunin setur ekki lög eða reglugerðir og ákvarðar ekki fjárhæðir bóta.
Tryggingastofnun starfar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007.
Hlutverk
Hlutverk Tryggingastofnunar er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna auk þess að sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin hverju sinni.
Stjórnsýslan
Alþingi setur lög sem Tryggingastofnun starfar samkvæmt:
- Lög um almannatryggingar nr. 100/2007
- Lög um félagslega aðstoð nr. 99/2007
- Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna nr. 22/2006
- Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar nr. 40/2009
Tryggingastofnun starfar einnig eftir reglugerðum frá velferðarráðuneyti.
Síða yfirfarin/breytt 06.12.2011
