75% örorku- og endurhæfingarmat eftir aldursbili og kyni
Í þessari töflu má sjá hve margir voru með 75% örorku- eða endurhæfingarmat í gildi 1.hvers mánaðar frá 1.apríl 2004 til núverandi mánaðar eftir kyni og aldri. Gögnin miðast við stöðuna rétt fyrir 1. hvers mánaðar. Heimilt er að ákvarða örorkumat 2 ár aftur í tímann.
Lífeyrisþegar eftir landshlutum, kyni og hvort um greiðslu í viðkomandi bótaflokki er að ræða.
Í þessari töflu má sjá fjölda þeirra sem hafa sótt um og eru með réttindi í janúar á örorkustyrk, endurhæfingar- , örorku- eða ellilífeyri eftir árum, landshlutum og kyni. Hægt er að sjá hve margir eru með greiðslu >0 kr. í þeim bótaflokki og fjölda þeirra sem eru með greiðslur = 0 kr. vegna of hárra annarra tekna. Ekki hefur verið keyrt uppgjör fyrir árin 2011-2012, auk þess geta bæst við afturvirk réttindi fyrir þau ár þar sem einstaklingar geta sótt um t.d. lífeyri tvö ár aftur í tímann.