Námskeið um rafræna þjónustu Tryggingastofnunar og kynningarfundur fyrir eldri borgara á Selfossi
Námskeiðið er ætlað eldri borgurum sem vilja nýta sér þessa þjónustuleið.
Starfsmenn frá Tryggingastofnun og umboði Tryggingastofnunar hjá sýslumanninum á Selfossi annast kennsluna.
Í stofunni eru 10 tölvur og fjöldi þátttakenda miðast við það. Skráning tilkynnist á netfangið kynningarmal@tr.is eða í síma 560 4400/Kynningarmál.
Mikilvægt er að þátttakendur hafi meðferðis veflykil ríkisskattstjóra til að geta skoðað eigin síður.
Dagskrá:
14.00 – 14.15 Rafræn þjónusta Tryggingastofnunar – Bragi L. Hauksson, verkefnisstjóri rafrænnar stjórnsýslu
14.15 – 14.30 Tryggingastofnun og lífeyrisréttindin – Ásta Júlía Arnardóttir, deildarstjóri kynningarmála og Anna Marí, deildarstjóri símavers.
Opinn kynningarfundur kl. 17.00 til 18.00 þann 11. maí á Grænumörk 5
kl. 17.00 til 17.30 Tryggingastofnun og lífeyrisréttindin,
Anna Marí Ingvadóttir, Ásta Júlía Arnardóttir og Bragi L. Hauksson
kl. 17.30 til 18.00 Umræður
Tryggingastofnun
Félag eldri borgara á Selfossi
Alls verða fjögur námskeið á landsbyggðinni í maí og verða þau auglýst síðar
