Fréttir
Námskeið um réttindi lífeyrisþega
Landsbankinn stendur fyrir röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið þeirra er að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin.
Á næstu fjármálakvöldum verður Tryggingastofnun með kynningu á réttindum lífeyrisþega og munu þær Sólveig Hjaltadóttir og Margrét Jónsdóttir sjá um fyrstu kynninguna, sem verður kl. 20.00 í kvöld í útibúi Landsbankans í Grafarholti.
Fyrir áramót verða alls fimm fjármálakvöld hjá Landsbankanum og auk Sólveigar og Margrétar munu þær Þorgerður Ragnarsdóttir, Ásdís Eggertsdóttir, Anna Marí Ingvarsdóttir og Ásta Júlía Arnardóttir sjá um kynningarnar.
Næstu námskeið:
- 23. september kl. 20.00, Útibúið í Grafarholti, Vínlandsleið.
- 30. september kl.20.00, Útibúið í Keflavík, Hafnargötu 57.
- 7. október kl. 20.00, Félagsmiðstöðin Hlymsdalir, Miðvangi 6. Egilsstöðum.
- 14. október kl. 20.00, Útibúið á Laugavegi 77.
- 21. október kl. 20.00, Útibúið á Akranesi, Þjóðbraut 1.
