Tryggingastofnun
Fréttir

Dagvist fyrir aldraðra – fyrirkomulag.

28.7.2010

 

Nokkur umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum undanfarið um dagvistir fyrir aldraða sem reknar eru víða um land. 

Því hefur m.a. verið haldið fram að skráning í dagvistun hafi áhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun.  Rétt er að taka fram að svo er ekki. 

Samkvæmt lögum um málefni aldraðra er dagvist aldraðra stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagvist aldraðra fer fram mat  á heilsufari og veitt  hjúkrunar- og læknisþjónusta.  Boðið skal upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins. Þá er í boði tómstundaiðja, félagslegur stuðningur, fræðsla og ráðgjöf. Stjórn dagvistar á hverjum stað tekur ákvörðun um hverjir njóta dagvistunnar.   

Þeir sem njóta þjónustu dagvistar taka sjálfir þátt í kostnaði af dagvistinni. Í dag er það kr. 850 daglega samkvæmt reglugerð og er nauðsynlegur flutningskostnaður innifalinn.  Tryggingastofnun greiðir dagvistinni á hverjum stað daggjöld á móti þessari upphæð og fær upplýsingar eftir á um einstaklinga sem njóta þjónustunnar hverju sinni.

Á sumum hjúkrunarheimilum munu vera föndurtímar sem aldraðir og jafnvel fatlaðir í nágrenninu geta sótt.  Slíkir föndurtímar einir og sér teljast ekki vera dagvist fyrir aldraða.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica