Tryggingastofnun
Fréttir

Helstu niðurstöður endurreiknings og uppgjörs bóta vegna ársins 2009        

26.7.2010

Árlega fer fram endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Niðurstöður fyrir árið 2009 liggja nú fyrir. Greiðslur til lífeyrisþega á árinu 2009 hafa verið bornar saman við tekjuáætlanir og skattframtal fyrir sama ár. Niðurstaðan segir til um hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt út í samræmi  við þann rétt sem hann hafði á árinu 2009. 

Helstu niðurstöður endurreiknings og uppgjörs vegna ársins 2009

  • Fjöldi lífeyrisþega er rúmlega 47 þúsund manns. Ellilífeyrisþegar eru um 30 þúsund og örorkulífeyrisþegar  um 17 þúsund.
  •  66% lífeyrisþega eða 31 þúsund manns fengu greiðslur innan eðlilegra frávika.
  • 24% lífeyrisþega eða 11 þúsund manns  fengu ofgreiðslur umfram eðlileg frávik.
  • 10% lífeyrisþega eða 5 þúsund manns eiga inneignir umfram eðlileg frávik.
  • Heildarfjárhæð endurreiknaðs lífeyris og tengdra bóta er um 47 milljarðar kr.
  • Heildarniðurstöður endurreiknings eru 2,6 milljarðar kr.  Ofgreiðslur  voru 4,3 milljarðar kr. og vangreiðslur 1,7 milljarður kr.

Mismunandi áhrif tekjuflokka á niðurstöðu endurreiknings

Eins og undanfarin ár er munurinn lítill á milli atvinnu- og lífeyrissjóðstekna í tekjuáætlunum 2009 og í skattframtali. Hins vegar voru vextir, verðbætur og arður verulega vanáætluð í tekjuáætlunum lífeyrisþega, eða um 75%. Það er megin skýringin á ofgreiðslum lífeyris og tengdra bóta vegna ársins 2009 en um 22 þúsund lífeyrisþegar sem fengu vexti og verðbætur greindu ekki frá þeim í tekjuáætlunum. Af 4,3 milljarða kr. ofgreiðslum vegna ársins 2009 eru um 3,3 milljarðar kr. vegna fjármagnstekna, en um 1 milljarður kr. vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna (0,4 atvinnutekjur og  0,6  lífeyrissjóðstekjur).

Næstu daga fá  lífeyrisþegar sent bréf með niðurstöðum uppgjörsins. Í því bréfi eru jafnframt upplýsingar frá Ríkisskattstjóra um breytingar sem hafa orðið á tekjum innan ársins 2009.

Niðurstöður uppgjörs verða aðgengilegar fyrir lífeyrisþega á þjónustuvef Tryggingastofnunar, tryggur.is, eftir kl. 15:00 þriðjudaginn 27.júlí n.k.

Upplýsingasíða um uppgjör ársins 2009


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica