Fréttir
Útborgun ágústmánaðar flýtt
Lífeyrisþegar fá greitt þann 30. júlí í stað 1. ágúst nk.
Félagsmálaráðuneytið hefur í samvinnu við fjármálaráðuneytið ákveðið að greitt verði til lífeyrisþega vegna ágústmánaðar þann 30. júlí nk. en ekki 1. ágúst eins og venja er. Þetta er gert til þess að koma til móts við lífeyrisþega þar sem löng helgi er framundan.
