Lækkanir lífeyrissjóða og greiðslur Tryggingastofnunar
Tryggingastofnun hefur í samráði við lífeyrissjóðina leitað leiða til að þessar breytingar geti gengið sjálfkrafa fyrir sig til hægðarauka fyrir alla aðila. Það reyndist þó ekki unnt að svo stöddu. Breytingarnar eru mismiklar og koma til á mismunandi tímum. Margir lífeyrisþegar eiga aðild að fleiri en einum sjóði og einnig það flækir málið.
Áhrif lægri lífeyrissjóðsgreiðslna á greiðslur frá Tryggingastofnun eru mismiklar hjá einstaklingum, háð samsetningu heildartekna. Auðvelt er að átta sig á hvaða áhrif breytingin hefur með því að setja forsendur inn í reiknivél hér á vefnum á eða með bráðabirgðaútreikningi á vefnum tryggur.is.
Vakin er athygli á að allar greiðslur til lífeyrisþega vegna 2010 verða leiðréttar með hliðsjón af rauntekjum við uppgjör um mitt ár 2011. Þeir þurfa því ekki að aðhafast neitt til að leiðrétting eigi sér stað.
Lífeyrisþegar sem óska þess að fá réttindi sín endurreiknuð fyrr þurfa að skila nýrri tekjuáætlun til Tryggingastofnunar. Það er auðvelt að gera rafrænt á tryggur.is, með aðstoð veflykils ríkisskattstjóra, eða með því að fylla út eyðublað sem nálgast má á vefnum www.tr.is og hjá Tryggingastofnun og umboðum um land allt. Við endurskoðun tekjuáætlunar kemur sér vel ef lífeyrisþegar fá einnig upplýsingar um áunna vext frá bankanum sínum og nota þær til að áætla fjármagnstekjur sínar fyrir árið 2010 og færa þær inn um leið og aðrar breytingar.
Minnt er á að það er á ábyrgð lífeyrisþega að veita Tryggingastofnun réttar upplýsingar um tekjur og þær breytingar sem verða á þeim.
Hér fylgir tafla sem sýnir mismunandi áhrif eftir því hve háar greiðslur úr lífeyrissjóðum eru og eftir því hve mikið lífeyrissjóðirnir lækka. Við útreikning er reiknað með heildar árstekjum og réttindin reiknuð út frá því. Í töflunni er miðað við að ekki sé um aðrar tekjur en lífeyrissjóðstekjur og bætur frá Tryggingastofnun að ræða.
Tafla: Áhrif lækkana lífeyrissjóðstekna á rétt til greiðslu frá Tryggingastofnun
