Greiðsla barnalífeyris
Barnalífeyrir verður ákvarðaður í allt að tvö ár aftur í tímann ef öll skilyrði eru uppfyllt.
Tryggingastofnun hefur ákveðið, vegna úrskurða Úrskurðarnefndar almannatrygginga frá í sumar, að við afgreiðslu umsókna um barnalífeyri skuli ákvarða barnalífeyri allt að tveimur árum aftur í tímann að öllum skilyrðum uppfylltum. Þetta verklag tekur þegar gildi og á bæði við um nýjar umsóknir og umsóknir sem þegar bíða afgreiðslu hjá stofnuninni.
Þeir sem hafa sótt um og fengið synjun um greiðslur á barnalífeyri aftur í tímann undanfarið ár geta óskað eftir því skriflega með bréfi að mál þeirra verði endurskoðuð. Þá verða málin skoðuð aftur efnislega og ákvarðað hvort skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris eru uppfyllt eða ekki.
Helstu skilyrði fyrir réttindum barnalífeyris eru:
- Umsækjandi er elli-, örorku- eða endurhæfingarlífeyrisþegi og framfærandi barns undir 18 ára aldri.
- Umsækjandi er eini framfærandi barns undir 18 ára aldri og getur ekki sótt um meðlag vegna þess að hitt foreldri barnsins er látið, sætir refsivist lengur en í þrjá mánuði eða barnið fæst ekki feðrað.
- Umsækjandi eða barnið sjálft þarf að hafa átt lögheimili á Íslandi í a.m.k. þrjú ár áður en umsókn er lögð fram.
Barnalífeyrir er greiddur annað hvort sem viðbótargreiðslur með börnum lífeyrisþega, örorkustyrkþega eða sem ígildi meðlags einstæðs foreldris sem ekki á rétt á meðlagi. Ef lífeyrisþegi er meðlagsskyldur og Tryggingastofnun sér um milligöngu meðlags skuldajafnast barnalífeyrir á móti meðlagskröfu.
Örorkustyrkþegar geta átt rétt á 75% barnalífeyri. Heimilt er að greiða tvöfaldan barnalífeyri ef réttur er til staðar vegna beggja foreldra. Greiðslur falla ekki niður þó örorkulífeyrir falli niður vegna tekna en hins vegar gerist það ef ellilífeyrir eða örorkustyrkur fellur niður vegna tekna.
Upphæð barnalífeyris er nú kr. 24.230 sbr. reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2012 nr. 1233/2011 Greiðslurnar eru undanþegnar skatti.
Sótt er um barnalífeyri með því að fylla út eftirfarandi eyðublöð sem er að finna á tr.is.
- Vegna örorkulífeyris og örorkustyrks: Umsókn um örorkulífeyri og tengdar greiðslur.
- Vegna ellilífeyris: Umsókn um ellilífeyri og tengdar greiðslur
- Vegna endurhæfingarlífeyris og ígildi meðlags: „Umsókn um meðlag bráðabirgðameðlag, mæðra/feðralaun og barnalífeyri“
Nánari upplýsingar um barnalífeyri.
