Tryggingastofnun
Fréttir

Uppgjör Tryggingastofnunar 2011

23.7.2012

Ár hvert, þegar fyrir liggja tekjur samkvæmt skattframtali, fer fram endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Uppgjörið tryggir að allir fái réttar bætur.  

Niðurstöður fyrir árið 2011 liggja nú fyrir. Næstu daga fá lífeyrisþegar sent bréf með niðurstöðum uppgjörsins. Ennfremur verða niðurstöðurnar aðgengilegar á Mínum síðum á tr.is eftir kl. 17:00 þann 20. júlí. 

Inneignir verða greiddar 3. ágúst og innheimta krafna hefst 1. september.

Helstu niðurstöður endurreiknings og uppgjörs bóta vegna ársins 2011

  • Heildarfjöldi lífeyrisþega er um 46  þúsund manns.
  • Ellilífeyrisþegar eru um 29 þúsund og örorkulífeyrisþegar um 17 þúsund.
  • Heildarfjárhæð endurreiknaðs lífeyris og tengdra bóta er um 57,7 milljarðar kr.
  • Heildarniðurstöður endurreiknings – inneignir tæpir 3 milljarðar króna og greiðslur umfram rétt um 1,7 milljarðar króna.
  •  63% lífeyrisþega eru með inneignir og 30% með kröfur, 7% með engan mismun.
  • Af þeim tæplega 14 þús. sem fá kröfu eru um 9 þúsund manns eða um 70% með kröfu innan  við 100 þús. kr.
  • Af þeim tæplega 29 þúsundum manna sem eru með inneignir eru um 20. þús. manns eða um 70% með inneign undir 100 þús. kr.

Vextir, verðbætur og arður voru í mörgum tilvikum ofáætlaðar í tekjuáætlunum, en atvinnutekjur hins vegar vanáætlaðar. Í heildina var 1,6% frávik í lífeyrissjóðstekjum milli tekjuáætlunar og skattframtals.

Nákvæm tekjuáætlun, réttari greiðslur

Í upphafi hvers árs sendir Tryggingastofnun út tillögu að tekjuáætlun, sem lífeyrisgreiðslur og tengdar bætur eru reiknaðar út frá. Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að leiðrétta áætlunina ef við á  Þannig má tryggja að greiðslur verði réttar.

 

Upplýsingasíða um uppgjör ársins 2011


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica