Tryggingastofnun
Fréttir

Flutningur öryrkja milli EES landa og réttur til bóta

3.7.2012

Ísland er aðili að EES samningum og var samningurinn lögfestur hér á landi með lögum nr. 2/1993. Samkvæmt grundvallarreglum þjóðarréttar ber Íslandi að virða þær reglur sem falla undir samninginn þ.a.m. reglur um almannatryggingar.    

Markmiðið með EES samningum er m.a. að tryggja það að ríkisborgarar landanna missi ekki þann rétt sem þeir hafa áunnið sér þó þeir flytji á milli landa sem eru aðilar að EES-samningnum.  Almannatryggingakerfi landanna eru mismunandi en samningurinn á að tryggja samhæfingu þeirra svo að kerfin spili saman. Þrátt fyrir það eru kerfin ekki samræmd og mismunandi reglur gilda í hverju landi fyrir sig.

Öryrki, sem er ríkisborgari EES ríkis á því að - sækja um rétt sinn til almannatryggingabóta til þess lands/landa sem hann var tryggður í fyrir upphaf örorku .  Ef viðkomandi hefur verið tryggður í fleiri en einu landi á hann hlutfallslega rétt í hverju landi um sig. Tryggingastofnun hefur milligöngu um umsókn til annarra landa.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica