tr.is – Besti ríkisvefurinn 2011
Í gær, 18. janúar var vefur Tryggingastofnunar útnefndur Besti ríkisvefurinn árið 2011. 
Úttektin var framkvæmd í lok árs 2011 og var tvíþætt, mat sérfræðinga og sjálfsmat. Sérfræðingar mátu 267 ríkisvefi samkvæmt gátlista um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Forsvarsmenn vefjanna svöruðu síðan spurningalista og gátu gert athugasemdir við matið. Að lokum tók þriggja manna dómnefnd við, sem mat 10 bestu vefina með tilliti til þátta sem ekki voru í úttektinni s.s. almennt viðmót.
Ráðgjafafyrirtækið Deliotte hf. sá um framkvæmd verkefnisins.
Í umsögn um vef Tryggingastofnunar sagði „Vefurinn tr.is geymir gríðarlegt magn upplýsinga sem settar eru fram á skýran og aðgengilegan hátt. Yfirlit á forsíðu er mjög skýrt og vel uppsett svo notendum vefsins veitist auðvelt að finna svör við spurningum sínum í öllum málaflokkum. Verkfæri vefsins eru einföld í notkun. Útlit vefsins er stílhreint og myndvinnsla vel útfærð með hverjum málaflokki. Viðmótið er hlýlegt og mannlegt.“
Á grafinu má sjá stöðu vefs Tryggingastofnunar í samanburði við aðrar ríkisstofnanir.

Er þetta í fjórða sinn sem slík úttekt er gerð á á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga Var þetta í fyrsta sinn sem veittar voru viðurkenningar fyrir bestu vefina, ríkisvef og vef sveitarfélaga sem féll í skaut Akureyrarbæjar.
