Tryggingastofnun
Fréttir

Greiðsluáætlun 2012

13.1.2012

Nú er hægt að skoða greiðsluáætlun 2012 á tr.is, Mínum síðum. Á næstu dögum berst lífeyrisþegum græna umslagið í pósti frá Tryggingastofnun. Í græna umslaginu er áætlun fyrir árið 2012 sem sýnir lífeyrisgreiðslur sundurliðaðar eftir greiðslutegundum og mánuðum ásamt tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2012 og kröfuyfirliti ef við á.

Lífeyrisþegar eru hvattir til að geyma greiðsluáætlunina þar sem mánaðarlegir greiðsluseðlar eru ekki sendir út. Græna umslagið er sent til rúmlega 50 þúsund lífeyrisþega og mun berast fljótlega eftir helgi.

Til að fara á Mínar síður þarf að slá inn kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra. Ef veflykil vantar er sótt um hann á skattur.is.  Hægt er að fá hann sendan í heimabanka eða heim með pósti. Einnig er hægt að nota rafræn skilríki á debetkortum frá bönkunum.

Vinsamlega athugið!

Ef breytingar verða á högum lífeyrisþega eða tekjur breytast á árinu þarf að leiðrétta tekjuáætlun 2012 til þess að greiðslur verði réttar. Hægt er að gera það á Mínum síðum eða skila henni undirritaðri til Tryggingastofnunar eða umboða um land allt. Ef forsendur breytast verður send ný greiðsluáætlun.

Þeir sem nýta sér Mínar síður  til að breyta og skila tekjuáætlun, geta strax fengið bráðabirgðaútreikning sem sýnir niðurstöður miðað við breyttar forsendur.

Einnig er hægt að nálgast eyðublað fyrir tekjuáætlun hér:

Eyðublaðið þarf að prenta út, undirrita og koma til Tryggingastofnunar eða umboða.

Vegna útsendingar græna umslagsins má búast við töluverðu álagi hjá Tryggingastofnun og umboðum um land allt. Við vonum að þetta valdi viðskiptavinum okkar ekki óþægindum en bent skal á að margar þjónustuleiðir eru í boði sem geta jafnframt sparað sporin.

  • Mínar síður eru aðgengilegar á tr.is. Við innskráningu þarf kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki á debetkortum frá bönkunum.
  • Á vef Tryggingastofnunar tr.is eru ítarlegar upplýsingar um hvaðeina sem snertir almannatryggingar.
  • Hægt er að senda tölvupóst á netfangið tr@tr.is eða eiga netsamtal við þjónusturáðgjafa í gegnum hnapp á forsíðu tr.is.
  • Sími Tryggingastofnunar er:  560 4400 – Símaþjónusta: 560 4460 – Gjaldfrjálst númer:  800 6044
  • Umboðsmenn Tryggingastofnunar um land allt

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica