Tryggingastofnun
Fréttir

Unnið að hækkun bóta

3.6.2011

Í maí voru undirritaðir kjarasamningar á almennum markaði til þriggja ára. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna samninganna kom m.a. fram eftirfarandi;

Stjórnvöld munu endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA, þannig að lífeyrisþegar og atvinnulausir njóti hliðstæðra kjarabóta og samið verður um í kjarasamningum.
Unnið er að nánari útfærslu þessarar yfirlýsingar í Velferðarráðuneytinu og Tryggingastofnun Ríkisins. Sameiginleg kynning velferðarráðherra, Vinnumálastofnunar og Tryggingastofnunar á áhrifum þessarar kjarabóta verður í upphafi næstu viku.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica