Fréttir
Ný almannatryggingalöggjöf í smíðum
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að endurskoða almannatryggingakerfið. Hópnum er ætlað að skila drögum að frumvarpi að nýjum lögum um lífeyristryggingar fyrir lok þessa árs.
Kemur þetta fram á vef velferðarráðuneytisins.
Lesa frétt ráðuneytisins.
Ágúst Þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir Röed, lögfræðingar í velferðarráðuneytinu, vinna með starfshópnum ásamt fulltrúa frá Tryggingastofnun ríkisins.
