Tryggingastofnun
Besti ríkisvefurinn 2011

tr.is er besti ríkisvefurinn árið 2011

Þann 18. janúar sl.  var vefur Tryggingastofnunar útnefndur Besti ríkisvefurinn árið 2011.  Besti ríkisvefurinn 2011


Í umsögn um vef Tryggingastofnunar sagði  „Vefurinn tr.is geymir gríðarlegt magn upplýsinga sem settar eru fram á skýran og aðgengilegan hátt. Yfirlit á forsíðu er mjög skýrt og vel uppsett svo notendum vefsins veitist auðvelt að finna svör við spurningum sínum í öllum málaflokkum. Verkfæri vefsins eru einföld í notkun. Útlit vefsins er stílhreint og myndvinnsla vel útfærð með hverjum málaflokki. Viðmótið er hlýlegt og mannlegt.“

Á grafinu má sjá stöðu vefs Tryggingastofnunar í samanburði við aðrar ríkisstofnanir.

Hvað er spunnið í opinbera vefi niðurstöður

Þakkarorð forstjóra: 

„Það er ekki á hverjum degi sem við hjá Tryggingastofnun fáum viðurkenningu á opinberum vettvangi fyrir okkar störf. Við erum vanari því að sæta þar gagnrýni fyrir verk okkar, enda er viðskiptamannahópurinn stór og eðli verkefnanna þannig að þau munu ætíð vera til gagnrýninnar umfjöllunar í fjölmiðlum.

Tryggingastofnun greiðir um hver mánaðamót fjölbreyttum og fjölmennum hópi einstaklinga lífeyri eða bætur af ýmsum toga, um er að ræða um 55 þúsund manns. Við förum með tæplega fimmtung fjárlaga og erum því stór í sniðum hvernig sem á það er litið.

Þarfir viðskiptavina okkar eru margvíslegar og leggjum við okkur fram um að mæta þeim eins og kostur er. Það gerum við í öllum okkar samskiptum við þá – einnig á vefnum. Þar leggjum við áherslu á að koma fjölbreyttum og umfangsmiklum upplýsingum á framfæri á mannamáli. Hugum að því að aðgengi sé gott – vefurinn opinn til samskipta og vel upp settur þannig að hann taki vel á móti þeim sem þangað leita.

Það er margra manna tak að koma upp góðum vef – þau sem hér standa með mér á sviðinu eru fulltrúar þeirra sem það hafa gert. En til þess að viðhalda honum og gera hann þannig úr garði að hann verði bestur í harðri samkeppni svo marga aðra frábærra ríkisvefja þá þurfa allir starfsmenn að vera vakandi fyrir verkefninu; hvað er inni á vefnum, hvernig það er fram borið og hvort og þá hvernig bæta megi vefinn að efni, umgjörð eða tæknilegum útfærslum og möguleikum. Það þarf að fylgjast vel með þeim nýjungum sem tiltækar eru hverju sinni.

Við erum vel mönnuð í Tryggingastofnun, höfum metnaðarfullum starfsmönnum á að skipa. Vefstjórinn okkar Hildur Hafstein á hér sérstakt hrós skilið. Hún hefur sýnt mikinn metnað í störfum sínum við uppsetningu og þróun vefsins og ræktað gott samstarf við þá starfsmenn sem vinna með henni efni inn á vefinn og að tæknilegri þróun hans.

Vefurinn er í raun ásýnd stofnunarinnar og eitthvert mikilvægasta þjónustutækið sem við höfum. Því er afar mikilvægt að hlusta á óskir og athugasemdir viðskiptavinanna og bregðast við þeim. Sífellt er hægt að gera betur – þetta verkefni tekur engan enda."

Er þetta í fjórða sinn sem slík úttekt er gerð á  á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga  Var þetta í fyrsta sinn sem veittar voru viðurkenningar fyrir bestu vefina,  ríkisvef og vef sveitarfélaga sem féll í skaut Akureyrarbæjar. 


 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica