Afgreiðslutímar og símatímar
Sími
Viðskiptavinum er veitt öll sú þjónusta sem unnt er að veita gegnum síma og varða almannatryggingar.
Símanúmer þjónustumiðstöðvar eru:
- 560 4460
- 800 6044 - grænt númer, gjaldfrjálst
Hægt er að tala við þjónusturáðgjafa í síma milli kl. 8:30 - 15:30.
Aðalnúmer Tryggingastofnunar er 560 4400.
Skiptiborðið er opið frá 8:30 - 16:00.
Líttu við
Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar er á horni Laugavegar og Snorrabrautar, rétt hjá Hlemmi. Sjá á korti.
Afgreiðslutíminn er frá 8:30 - 15:30.
Netsamtal
Þú getur talað við þjónusturáðgjafa með beinum hætti í gegnum netið.
Smelltu á þennan hnapp:
Netsamtalið er opið frá kl. 8:30 - 15:30 alla virka daga.
Tölvupóstur
Þjónustunetfangið er tr@tr.is.
Á það er hægt að senda allar almennar fyrirspurnir.
Rafræn þjónusta - mínar síður
Til þess að komast á rafræna þjónustu TR sem kallast Tryggur þarf veflykil ríkisskattstjóra, þann sama og notaður er við framtalsskil.
Þjónusta í boði nú:
- Greiðsluáætlun lífeyris
- Skil á tekjuáætlun
- Bráðabirgðaútreikningur lífeyris
- Skjöl frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun
- Beiðni um samning vegna endurgreiðslu
Þjónustumiðstöðin sér einnig um:
- Móttöku læknareikninga vegna endurgreiðslu og afsláttarkorts.
- Móttöku tannlæknareikninga vegna endurgreiðslu.
- Útgáfu evrópska sjúkratryggingakortsins.
Viðskiptavinir geta sent frumrit kvittana í pósti og fengið endurgreiðsluna inn á bankareikning sinn. Með þessu fyrirkomulagi geta viðskiptavinir sparað sér sporin og notið um leið góðrar þjónustu.
Tryggingastofnun sér um þjónustu Sjúkratrygginga Íslands við almenning
Þann 1. október 2008 tóku Sjúkratryggingar Íslands við réttindum og skyldum Tryggingastofnunar ríkisins að því er varðar framkvæmd sjúkratrygginga og slysatrygginga skv. almannatryggingalögum, sbr. III. bráðabirgðaákvæði laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og skv. lögum nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu. Tryggingastofnun sér áfram um þjónustu Sjúkratrygginga við almenning.

