Afgreiðslutímar og símatímar
Bent er á rafræna þjónustu Tryggingastofnunar, Mínar síður. Þar má t.d. skoða ýmis rafræn skjöl eins og greiðsluáætlun og greiðsluskjöl. Eins er mögulegt að skoða og breyta tekjuáætlun, fá bráðabirgðaútreikning lífeyris og fleira.
Nota þarf veflykil Ríkisskattstjóra til að fara á Mínar síður.
Sími
Viðskiptavinum er veitt öll sú þjónusta sem unnt er að veita gegnum síma og varða almannatryggingar.
Símanúmer þjónustumiðstöðvar eru:
- 560 4460
- 800 6044 - grænt númer, gjaldfrjálst ef hringt er úr fastlínusíma en ekki ef hringt er úr farsíma.
Hægt er að tala við þjónusturáðgjafa í síma milli kl. 09.00 - 15:30.
Skiptiborðið er opið frá kl. 09.00 - 16:00.
Líttu inn
Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar er á horni Laugavegar og Snorrabrautar, rétt hjá Hlemmi. Sjá á korti.
Afgreiðslutíminn er frá 10.00 - 15:30.
Þjónustumiðstöðin sér einnig um:
- Móttöku læknareikninga vegna endurgreiðslu og afsláttarkorts.
- Móttöku tannlæknareikninga vegna endurgreiðslu.
- Útgáfu evrópska sjúkratryggingakortsins.
Viðskiptavinir geta sent frumrit kvittana í pósti og fengið endurgreiðsluna inn á bankareikning sinn. Með þessu fyrirkomulagi geta viðskiptavinir sparað sér sporin og notið um leið góðrar þjónustu.
Netsamtal
Þú getur talað við þjónusturáðgjafa með beinum hætti í gegnum netið.
Smelltu á þennan hnapp:
Netsamtalið er opið frá kl. 12:30 - 15:30 alla virka daga.
Tölvupóstur
Þjónustunetfangið er tr@tr.is.
Á það er hægt að senda allar almennar fyrirspurnir.
Rafræn þjónusta - mínar síður
Til þess að komast á rafræna þjónustu Tryggingastofnunar sem kallast Mínar síður þarf veflykil ríkisskattstjóra, þann sama og notaður er við framtalsskil.
Þjónusta í boði nú:
- Greiðsluáætlun lífeyris
- Skil á tekjuáætlun
- Bráðabirgðaútreikningur lífeyris
- Skjöl frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun
- Beiðni um samning vegna endurgreiðslu
Tryggingastofnun sér um þjónustu Sjúkratrygginga Íslands við almenning
Þann 1. október 2008 tóku Sjúkratryggingar Íslands við réttindum og skyldum Tryggingastofnunar ríkisins að því er varðar framkvæmd sjúkratrygginga og slysatrygginga skv. almannatryggingalögum, sbr. III. bráðabirgðaákvæði laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og skv. lögum nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu. Tryggingastofnun sér áfram um þjónustu Sjúkratrygginga við almenning.
Síða yfirfarin/breytt 04.05.2012

