Menntunarmeðlag / barnalífeyrir
Hvernig er sótt um menntunarbarnalífeyri?
Ungmenni sækir sjálft um á eyðublaðinu: Umsókn um framlag vegna náms og barnalífeyrir vegna náms og skilar til þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, eða umboðum hennar.
Með umsókn þarf að fylgja:
- Staðfesting á skólavist og einingafjölda náms.
- Skila þarf inn staðfestu ljósriti af skattframtali.
- Þegar sótt er um framhald þarf að skila inn námsframvindu frá síðustu önn, einingafjöldi og mætingar ásamt einingafjölda fyrir næstu önn. Ekki þarf að sækja um aftur með umsókn.
- Skilyrði er að einstaklingar séu í fullu námi, en hægt er að sækja um undanþágu vegna einstakra tilfella ef staðfesting frá námsráðgjafa eða annarra starfsmanna skóla er til staðar.
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar fellur niður:
- þegar viðkomandi uppfyllir ekki lengur skilyrði um skólagöngu.
- ef ungmennið verður örorkulífeyrisþegi
- ef ungmennið flytur úr landi. ef foreldri er ekki lengur örorkulífeyrisþegi
- ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum
Skilyrði fyrir greiðslu:
Skilyrði er að skólavistin/starfsþjálfunin taki a.m.k. sex mánuði hvert ár. Ef um er að ræða óreglulegt nám eða námskeið er námstíminn reiknaður í kennslustundafjölda á almanaksárinu og telst þá sex mánaða nám samsvara 624 kennslustundum. Brot úr mánuði telst heill mánuður. Hægt er að fresta afgreiðslu menntunarbarnalífeyris þar til sex mánaða námstíma er náð.
