Vinnusamningur öryrkja

Vinnusamningur öryrkja

Tryggingastofnun ríkisins hefur heimild til að semja við atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði um að ráða starfsfólk sem nýtur örorkulífeyris, örorkustyrks og endurhæfingarlífeyris. Miðað er við að einstaklingur hafi skerta starfsgetu og hafi ekki verulegar aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun.

Stofnanir sem sinna atvinnumiðlun fatlaðra eru þeir aðilar sem vinna að undirbúningi skriflegs vinnusamnings og eru þannig tengiliður milli umsækjandans, fyrirtækisins og TR. Umsækjandi eða fyrirtæki hafa samband við samskiptaaðila. Þessir samskiptaaðilar senda umsókn til TR þar sem farið er fram á að gerður sé samningur á milli viðkomandi aðila.

Fullt starf og hlutastarf

Vinnusamning má gera bæði um fullt starf og hlutastarf, til dæmis vinnu hálfan daginn. Starfshlutfall má vera að hámarki 100%. Aðeins má gera vinnusamning við einn aðila í senn.

Launagreiðslur

Gerður er samningur um kaup og kjör sem skal vera sá sami og er gildandi á hverjum tíma milli launþega og atvinnurekanda. Í samningi skal tilgreindur vinnustaður og þau störf sem starfmanni er ætlað að leysa af hendi. Skerðing bóta á starfstímabili fer eftir almennum ákvæðum um skerðingu bótagreiðslna á hverjum tíma samkvæmt tekjum.

Umsjónaraðili samnings

Tryggingastofnun ríkisins tilnefnir umsjónaraðila sem oftast kemur frá undirbúningsaðila samningsins. Hlutverk umsjónaraðila samningsins er fyrst og fremst að fylgjast með því hvernig einstaklingnum vegnar í vinnunni, koma til aðstoðar ef eitthvað bjátar á og vera tengiliður gagnvart öðrum samningsaðilum.

Hlutfall endurgreiðslu launa og launatengdra gjalda

Hlutfall endurgreiðslu launa og launatengdra gjalda til viðkomandi fyrirtækis skal aldrei vera hærra en 75% og aldrei lægra en 25%.

Framkvæmd endurgreiðslu til fyrirtækja

Tryggingastofnun ríkisins endurgreiðir atvinnurekanda mánaðarlega hlutfall af launum starfsmannsins gegn framvísun kvittana þar að lútandi, afrit af launaseðlum og tilskildum gögnum sem send eru til skattyfirvalda.

Tryggingastofnun gefur skattyfirvöldum upplýsingar um endurgreidd vinnulaun til atvinnurekanda.

Tryggingastofnun tekur ekki þátt í greiðslu yfirvinnu, bónusgreiðslna, álags eða slíkra greiðslna nema í undantekningartilvikum og þá með fyrirfram samþykki frá Tryggingastofnun.


Öryrkjar
 

Þjónustuleiðir





Þetta vefsvæði byggir á Eplica