Dagpeningar utan stofnunar
Dagpeningar utan stofnunar
Ef lífeyrisþegi dvelur utan stofnunar meira en 24 klukkustundir í senn en útskrifast samt ekki er heimilt að greiða honum dagpeninga þann tíma. Greitt er að hámarki fyrir 8 sólarhringa í mánuði. Fullir dagpeningar utan stofnunar eru 2.551 kr. á dag og eru þeir tekjutengdir.
Aðeins þeir sem fá greidda vasapeninga geta sótt um dagpeninga utan stofnunar. Sömu reglur varðandi viðmiðunartekjur gilda um dagpeninga utan stofnunar og um vasapeninga.
Hvernig er sótt um vasapeninga utan stofnunar?
Starfsmenn sjúkrastofnunar sækja um dagpeninga utan stofnunar fyrir viðkomandi einstakling. Greiðslur fara fram mánaðarlega.
