Uppbót á lífeyri
Við mat á greiðslu uppbótar skal taka tillit til eigna og tekna bótaþega og kostnaðar.
Til þess að geta notið uppbótar á lífeyri verður viðkomandi að hafa einhverja tekjutryggingu.
Upphæð er metin í hverju tilviki.
Frekari uppbætur skulu þó aldrei greiddar til lífeyrisþega sem á eignir í peningum eða verðbréfum yfir 4 milljónir, eða hefur heildartekjur, að meðtöldum greiðslum frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðsgreiðslum, yfir 198.650 kr. Viðmiðunarmörk hjóna tvöfaldast í peningum eða verðbréfum. Ákvarðanir um greiðslu frekari uppbótar á lífeyri skulu að jafnaði vera tímabundnar. Uppbót á lífeyri fellur niður þegar viðkomandi flytur úr landi.
Frekari uppbætur er heimilt að greiða vegna:
- Mikils umönnunarkostnaðar.
- Sjúkra- eða lyfjakostnaðar, og heyrnartækja, sem sjúkratryggingar greiða ekki.
- Húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta. Sá sem á rétt á húsaleigubótum frá því sveitarfélagi sem hann býr í, fær ekki uppbót á lífeyri vegna hárrar húsaleigu.
- Vistunarkostnaðar á dvalarheimilum, stofnunum svo og sambýlum og áfangastöðum, sem fengið hafa starfsleyfi frá ráðuneyti.
Um greiðslu uppbótar á lífeyri
Frekari uppbætur á lífeyri eru reiknaðar sem hlutfall af upphæð grunnlífeyris, þannig að 100% uppbót er jafnhá fullum grunnlífeyri. Hámark uppbóta skal þó vera sem hér segir:
- Lífeyrisþegi, sem er í hjúskap eða í óvígðri sambúð: 90%
- Lífeyrisþegi, sem býr einn og er á eigin vegum og nýtur heimilisuppbótar: 70%
- Lífeyrisþegi, sem er einhleypur og nýtur umönnunar annarra en maka: 120%
Fjárhæð frekari uppbótar getur numið allt að 140% ef einhleypur lífeyrisþegi, sem nýtur umönnunar, getur sýnt fram á verulegan umönnunar-, sjúkra- eða lyfjakostnað sem sjúkratryggingar greiða ekki og ennfremur kostnað vegna heyrnartækja.
Uppbætur á lífeyri vegna lyfja- og sjúkrakostnaðar, umönnunar í heimahúsi, dvalar á sambýli, rafmagnskostnaðar vegna notkunar á súrefnissíu, heyrnartækja og húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta hafa ekki áhrif til lækkunar sérstakrar uppbótar til framfærslu frá og með 1. janúar 2011.
