Heimilisuppbót
Heimilisuppbót
Skilyrði er að umsækjandi njóti ekki fjárhagslegs hagræðis af sambýli við aðra um húsnæðisaðstöðu.
Hvernig er sótt um heimilisuppbót?
Sótt er um heimilisuppbót í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114, Reykjavík eða hjá umboðum utan Reykjavíkur. Fyllt er út í viðeigandi reiti á eyðublaðinu „Umsókn um örorkulífeyri og tengdar greiðslur".
Ef lífeyrisþegi er ekki í eigin húsnæði þarf hann að skila inn húsaleigusamningi.
Skerðing á heimilisuppbót
Heimilisuppbót skerðist á sama hátt og tekjutrygging eða vegna:
- Búsetu á sama hátt og lífeyrir.
- Tekna. Skattskyldar tekjur yfir frítekjumarki skerða tekjutryggingu um 38,35% þeirra tekna sem umfram eru. Helst er um að ræða í þessu samhengi launatekjur, lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur.
Heimilisuppbót fellur niður:
- þegar viðkomandi býr ekki lengur einn
- þegar tekjutrygging lífeyrisþega fellur niður
- þegar viðkomandi flytur úr landi
- þegar viðkomandi skiptir um húsnæði
