Réttindi við andlát maka
Lífeyrisgreiðslur
Til að tryggja að lífeyrisgreiðslur verði sem réttastar ber eftirlifandi maka að senda inn nýja tekjuáætlun og greina frá breytingu á högum sínum.
Dánarbætur
Dánarbætur greiðast þeim sem á lögheimili hér á landi og verður ekkja/ekkill innan 67 ára aldurs. Skilyrði er að viðkomandi hafi verið í hjúskap við hinn látna eða í skráðri, óvígðri sambúð í eitt ár eða lengur við andlátið.
Fólk í skráðri sambúð getur átt rétt á dánarbótum hafi það átt barn saman eða hafi sambúðin varað í eitt ár samfleytt. Sami réttur skapast ef konan er barnshafandi þegar sambýlismaður hennar andast.
Sex mánaða dánarbætur greiðast þeim sem verða ekkjur/ekklar innan 67 ára aldurs. Tólf mánaða dánarbætur greiðast í framhaldi af sex mánaða dánarbótum til þeirra sem hafa barn á framfæri eða ef um er að ræða erfiðar fjárhagslegar og félagslegar aðstæður.Þó ekki í lengri tíma en fjögur ár.
Sjómenn sem hefja töku lífeyris 60-70 ára eiga ekki rétt á dánarbótum.
Sex mánaða dánarbætur eru greiddar án tillits til allra annarra bóta en dánarbóta vegna bótaskylds slyss sem greiddar eru í átta ár eftir andlát maka og eru ekki tekjutengdar.
Sex mánaða bætur eru greiddar áfram eftir að viðtakandi er orðinn 67 ára, ef réttur til bótanna hefur skapast fyrir 67 ára aldur.
Framlenging dánarbóta
Ef eftirlifandi maki er með barn undir 18 ára aldri á framfæri sínu eða ef fjárhagslegar og félagslegar aðstæður mæla með því skulu greiddar dánarbætur í 12 mánuði til viðbótar eftir að 6 mánaða tímabilinu lýkur.
Ennfremur er heimilt að framlengja greiðslur dánarbóta um allt að 36 mánuði til viðbótar ef sérstaklega erfiðar fjárhagslegar og félagslegar aðstæður eru fyrir hendi.
Sex mánaða dánarbætur falla niður:
- við andlát ekkju/ekkils
- við flutning úr landi
- við hjúskap
Framlengdar dánarbætur falla niður:
- við andlát ekkju/ekkils
- við flutning úr landi
- við 67 ára aldur ekkju/ekkils en þá er hægt að sækja um ellilífeyri
- þegar ekkja/ekkill fær greiddan örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri, ellilífeyri sjómanna (60 - 67 ára), átta ára slysabætur, eða fullan slysalífeyri
- þegar ekkja/ekkill er ekki lengur með a.m.k. eitt barn undir 18 ára aldri á framfæri sínu, nema við eigi skilyrðið um fjárhagslegar og félagslegar aðstæður
- fjárhagslegar og félagslegar aðstæður ekkju/ekkils breytast til batnaðar (á við um 36 mánaða dánarbætur)
- þegar ekkja/ekkill gengur í hjónaband eða skráir sig í sambúð. Við sambúð falla bætur niður ári síðar
Að sækja um dánarbætur
Sótt er um dánarbætur í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114 eða í umboðum utan Reykjavíkur. Fylla þarf út eyðublaðið „Dánarbætur“
Ef sótt er um framlengdar dánarbætur þarf að skila gögnum um fjárhagslegar og félagslegar aðstæður. Þetta á þó ekki við 12 mánaða bætur ef umsækjandi er með barn á framfæri sínu.
Sótt er um dánarbætur á eyðublaðinu „Dánarbætur“.
Önnur réttindi
Ekkill eða ekkja getur nýtt sér skattkort maka í níu mánuði eftri andlát hans. Hægt er að sækja um lækkun tekju- og eignaskatts. Nánari upplýsingar er að finna hjá skattstjórum á vefnum www.rsk.is.
Eftirlifandi maki getur einnig átt rétt á fyrirgreiðslu hjá stéttarfélögum, stuðningi frá félagsþjónustu sveitarfélaga eða tryggingafélögum.
Dánarbú
Samkvæmt íslenskum lögum verður við andlát einstaklings til sjálfstæður lögaðili, dánarbú, sem tekur tímabundið við öllum réttindum og skyldum hins látna.
Þar sem um tímabundið ástand er að ræða þarf að gera varanlegri ráðstöfun til lengri tíma og er það gert með því að skipta búinu.
