Öryrkjar
Hvernig er sótt um örorkulifeyri?

Hvernig er sótt um örorkulífeyri?

Umsækjandi óskar eftir örorkumati í samráði við lækni sinn. Læknirinn fyllir út sérstakt vottorð um örorkumat og sendir læknisfræðilegri ráðgjöf Tryggingastofnunar.

Umsækjandi fyllir út umsóknareyðublað Tryggingastofnunar um örorkulífeyri og sendir læknisfræðilegri ráðgjöf Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Ef spurningar vakna við útfyllingu umsókna eru ráðgjafar í þjónustumiðstöð og umboðum tilbúnir að aðstoða við útfyllingu þeirra.

Umsækjandi fyllir einnig út spurningalista vegna færniskerðingar.

Eftirfarandi gögn þurfa líka að fylgja umsókn:

  • Tekjuáætlun, eðlilegt er þó að umsækjandi bíði með að skila henni þar til niðurstaða mats liggur fyrir.
  • Skattkort, ef umsækjandi vill nýta kortið hjá Tryggingastofnun.

Ef viðkomandi hefur átt lögheimili í öðru landi innan evrópska efnahagssvæðisins getur hann átt rétt á lífeyrisgreiðslum frá viðkomandi landi. Þá er fyllt út eyðublaðið  „Umsókn um lífeyri frá öðru EES-landi“ og því skilað inn til Tryggingastofnunar til frekari úrvinnslu.  Það eyðublað og úrskurður um örorku er sent til umsækjanda þegar örorkumat liggur fyrir og upplýsingar frá Þjóðskrá sýna að hann hafi búið erlendis.

Umsóknarferli og afgreiðslutími

Miðað við að öll gögn hafi borist er afgreiðslutími örorkulífeyris um sex til átta vikur.

Gögn sem þurfa að hafa borist Tryggingastofnun:

  • Umsókn um örorkulífeyri
  • Tekjuáætlun. eðlilegt er þó að umsækjandi bíði með að skila henni þar til niðurstaða mats liggur fyrir.
  • Læknisvottorð


 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica