Breytingar á lífeyrisgreiðslum
Breytingar á lífeyrisgreiðslum
Breytingar sem tóku gildi 1. júlí 2009:
Varðar ellilífeyrisþega:
- Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega við útreikninga tekjutryggingar lækkar og verður 480.000 kr. á ári.
- Frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur við útreikning tekjutryggingar verður 10.000 kr. á mánuði.
Varðar örorkulífeyrisþega:
- Aldurstengd örorkuuppbót skerðist vegna tekna.
Varðar alla lífeyrisþega:
- Afnám heimildar til að velja á milli frítekjumarks og þess að telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar.
- Lífeyrissjóðstekjur hafa áhrif á útreikning grunnlífeyris.
- Skerðingarhlutfall tekjutryggingar hækkar úr 38,35% í 45%. Breytingin er tímabundin og gildir til 31. desember 2013.
Breytingar sem tóku gildi 1. janúar 2009:
- Lífeyrisgreiðslur og frítekjumörk hækka um 9,6%.
- Úttekt á séreignarsparnaði hefur ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur.
- Fjármagnstekjur allt að 98.640 kr. ári hafa ekki áhrif á lífeyrisgreiðlur, fjármagnstekjur umfram það vega nú 100% við útreikning greiðslna.
- Frítekjumark atvinnutekna lífeyrisþega verður nú 109.600 kr. á mánuði.
- Samanburður við eldri reglur fellur niður nema hjá þeim sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
- Lágmarksfjárhæð til framfærslu verður 180.000 kr.á mánuði fyrir þá sem búa einir og 153.500 kr. fyrir aðra.
Breytingar sem tóku gildi 1. júlí 2008 voru:
- Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega 67-70 ára hækkaði í 100.000 kr. á mánuði. (1.200.000 kr. á ári)
- Frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega hækkaði einnig í 100.000 kr. á mánuði tímabundið til áramóta 2008/2009.
- Frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna örorkulífeyrisþega varð 25.000 kr. á mánuði. (300.000 kr. á ári)
- Aldurstengd örorkuuppbót hækkaði hjá þeim sem ekki nutu fullrar uppbótar.
Fyrsti áfangi breytinganna kom til framkvæmda 1. apríl sl. og fólu í sér að:
- Skerðing bóta vegna tekna maka var afnumin.
- 90.000 kr. frítekjumark á fjármagnstekjur gilti frá 1. janúar 2007.
- Skerðingarhlutfall vegna tekjutenginga ellilífeyris lækkaði úr 30% í 25% og frítekjumark ellilífeyris hækkaði.
- Vasapeningar hækkuðu í 38.225 kr. á mánuði.
