Málsmeðferð og kærur
Málsmeðferð
Þeir sem telja sig eiga rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun skulu sækja um þær til Tryggingastofnunar ríkisins og skal það í flestum tilvikum gert á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin hefur útbúið. Umsækjendum er skylt að veita stofnuninni og umboðum hennar allar þær upplýsingar sem þörf er á til að meta hvort viðkomandi umsækjandi eigi rétt á greiðslum og þá hvaða rétt hann á.
Að sama skapi er starfsfólki Tryggingastofnunar og umboða skylt að kynna sér til hlítar aðstæður þeirra sem sækja um og eiga rétt á greiðslum frá stofnuninni. Einnig er starfsfólki skylt að upplýsa viðskiptamenn um rétt þeirra samkvæmt lögum um almannatryggingar og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar.
Allar umsóknir eru afgreiddar eins fljótt og mögulegt er. Greitt er frá þeim degi sem umsækjandi hefur öðlast rétt eða uppfyllt skilyrði til greiðslna. Um ellilífeyrisþega gildir að greitt er frá og með 1. degi mánaðar eftir að umsækjandi verður 67 ára.
Ef viðskiptavinur er ósáttur við afgreiðslu sem hann hefur fengið í Tryggingastofnun hefur hann rétt til að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar almannatrygginga varðandi grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta innan þriggja mánaða frá afgreiðslu stofnunarinnar.
Kærur
Úrskurðarnefnd almannatrygginga tók til starfa 1. júlí 1999. Kærumál vegna afgreiðslu TR koma til úrskurðar hjá nefndinni en í henni eru þrír menn skipaðir til sex ára í senn, tveir lögfræðingar og einn læknir.
Úrskurðarnefnd er sjálfstæð og verður úrskurðum hennar ekki skotið til annarra stjórnvalda.
Úrskurðarnefnd almannatrygginga er til húsa að Vegmúla 3, fyrstu hæð, til hægri. Opnunartími er 9.00 til 13.00.
