Mæðra- eða feðralaun
Mæðra- eða feðralaun
Heimilt er að greiða mæðra- og feðralaun til maka örorkulífeyrisþega, þegar bætur almannatrygginga falla niður vegna vistunar á stofnun.
Þá er líka heimilt að greiða maka einstaklings sem sætir gæslu- eða refsivist mæðra- eða feðralaun, ef vistin hefur varað í að minnsta kosti þrjá mánuði.
Mæðralaun/feðralaun falla niður við:
- að sambúð með öðrum aðila en foreldri barns hefur varað í eitt ár.
- að tekin er upp sambúð með foreldri barnanna eða fyrrverandi sambýlisaðila.
- að sambúðarfólk eignist barn saman, þó að sambúðin hafi ekki varað eitt ár.
- að viðtakandi greiðslnanna gengur í hjúskap.
- að viðtakandi greiðslnanna flytur úr landi.
Sótt er um mæðra-eða feðralaun á þessu eyðublaði og í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar að Laugavegi 114, Reykjavík, eða í umboðum utan Reykjavíkur.
Síða yfirfarin/breytt 27.01. 2012
