Öryrkjar
Innheimta

Innheimta

Tilurð ofgreiðslna

Lífeyrismál – tekjutengdar greiðslur
Lífeyrisgreiðslur eru greiddar út samkvæmt tekjuáætlun sem er á ábyrgð lífeyrisþega að hafa rétta. Þegar álagning skattyfirvalda liggur fyrir ber Tryggingastofnun að endurreikna bótaárið miðað við álagðar tekjur. Ef álagðar tekjur reynast hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun sama árs myndast ofgreiðsla.

Leiðréttingar á tekjuáætlun og/eða breytingar á högum bótaþega innan tekjuárs geta einnig leitt til ofgreiðslna á tekjutengdum bótum.

Fjölskyldumál – ótekjutengdar greiðslur
Ofgreiðslur geta myndast t.d. vegna mæðralauna, feðralauna, barnalífeyris, umönnunar-greiðslna, bensínstyrks eða með­lags. Ástæðan er oftast sú að bótaþegi hefur ekki með formlegum hætti látið Tryggingastofnun vita um breytingar á aðstæðum, sem eru forsenda greiðslna eða hafa áhrif á fjárhæð þeirra.

Reglur um innheimtu ofgreiddra bóta

Samkvæmt meginreglu ber að endurgreiða ofgreiðslur innan 12 mánaða frá því að þær verða til. Ef hægt er að koma við frádrætti á bótum þá er það gert. Heimilt er að draga allt að 20% af mánaðarlegum tekjutengdum bótum upp í kröfur en þó ekki lægri fjárhæð en 3.000 kr.

Ef endurgreiðsla samkvæmt meginreglunni er þungbær er hægt að óska eftir greiðsludreifingu til lengri tíma, Við mat á slíkri beiðni er tekið mið af upplýsingum um heildartekjur, eignastöðu og aðrar aðstæður.

Helstu ákvæði um ofgreiddar bætur og innheimtu þeirra eru í 55. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007 og IV. kafla reglugerðar um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags nr. 598/2009.

Fyrirvari vegna breytinga á réttindum, skuldastöðu eða hugsanlegra inneigna
Ef breyting verður á rétti til bóta eða á skuldastöðu getur þurft að breyta endurgreiðslu. Ef inneignir myndast, hvort heldur sem er vegna uppgjörs bóta annarra ára eða af öðrum ástæðum, er heimilt að nýta þær að hluta eða öllu leyti til lækkunar á ofgreiðslu, þrátt fyrir eldri ákvörðun um greiðsludreifingu.

Leiðir til endurgreiðslu

Endurgreiðsluleiðir eru fjórar og eru blandaðar leiðir mögulegar:

1.      Leggja inn á reikning TR nr. 0001-26-30057, kt. 660269-2669
Þegar greitt er fyrir annan aðila þarf kennitala þess sem greitt er fyrir að fylgja greiðslunni. Ef greitt er úr heimabanka skal einnig skrá nafn og kennitölu þess sem greitt er fyrir í skýringarsvæði og senda kvittun í tölvupósti úr heimabanka á netfangið
fjarvarsla@tr.is.

Upplýsingar fyrir þá sem ætla að leggja inn á reikning TR erlendis frá:
IBAN - IS43 0001 2603 0057 6602 6926 69.
SWIFT - SISLISRE

2.      Frádráttur frá bótum
Allt að 20% af mánaðarlegum tekjutengdum bótum eru dregnar upp í körfu nema samið hafi verið um annað. Hægt er að semja um hærri frádrátt.

3.     Mánaðarlegir greiðsluseðlar í heimabanka
Greiðsluseðla er hægt að greiða mánaðarlega í heimabanka en einnig er hægt að setja þá í greiðsluþjónustu bankanna.

4. Boðgreiðslusamningar

Beiðni um boðgreiðslusamning þarf að berast fyrir 13. hvers mánaðar svo örugglega verði dregið af greiðslukorti um næstu mánaðamót.

Frekari innheimta

Verði boðum um að greiða eða hafa samband til að semja um endurgreiðslu ekki sinnt, mun Tryggingastofnun senda ofgreiðsluna í frekari innheimtu hjá Innheimtumiðstöð sýslumannsins á Blönduósi.

Nánari upplýsingar

Ef þú vilt semja um endurgreiðslu eða óskar frekari upplýsinga er þér velkomið að hafa samband við þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar í síma 560-4460, grænt númer 800-6044 og umboðsmenn um allt land. Starfsfólk þjónustumiðstöðvar á Lauga­vegi 114 og umboðsmenn stofnunarinnar utan Reykjavíkur taka við beiðn­um um endurgreiðslu en afgreiðsla beiðna (samþykkt eða synjun) er á forræði fjárreiðudeildar Tryggingastofnunar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin tr@tr.is eða innheimta@tr.is.

 


 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica