Áramót - Græna umslagið

Áramót – Græna umslagið

Í byrjun árs berst græna umslagið til lífeyrisþega eins og undanfarin ár.

Græna umslagið inniheldur tekjuáætlun fyrir árið 2013 og greiðsluáætlun sem miðast við upplýsingarnar í tillögunni. Einnig fylgir kröfuyfirlit ef við á.

Þessar sömu upplýsingar eru nú þegar aðgengilegar á Mínum síðum á tr.is  sem æ fleiri lífeyrisþegar nýta sér. Sú nýbreytni verið tekin upp að senda umslagið ekki til þeirra sem voru virkir notendur á Mínum síðum árið 2012.

Þeir sem ekki fá Græna umslagið sent heim en óska þess eru beðnir um að hafa samband við þjónustumiðstöð eða umboð Tryggingastofnunar um land allt. 

  • Tillaga að tekjuáætlun er byggð á fyrirliggjandi upplýsingum um tekjur liðins árs skv. staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra eða þeirri tekjuáætlun sem lífeyrisþegar hafa sjálfir skilað til að tilkynna um breyttar aðstæður. Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að yfirfara tillöguna sem kemur frá Tryggingastofnun og leiðrétta ef þeir telja ástæðu til. Hægt er að leiðrétta tekjuáætlun oft á ári.
  • Greiðsluáætlun byggir á upplýsingunum sem koma fram í tillögu að tekjuáætlun. Þar kemur fram, sundurliðað á mánuði og eftir greiðslutegundum, hvaða mánaðargreiðslur lífeyrisþegar eiga von á að fá miðað við óbreytta tekjuáætlun. Ef lífeyrisþegar breyta tekjuáætlun fá þeir senda nýja greiðsluáætlun sem miðast við nýjar upplýsingar. Greiðsluáætlunina er gott að geyma á vísum stað. Mánaðarlegir seðlar með upplýsingum um greiðslur Tryggingastofnunar birtast á Mínum síðum.
  • Kröfuyfirlit fylgir með eftir atvikum. Það sýnir skuldastöðu um áramót
Síða yfirfarin/breytt 28. janúar 2013

Öryrkjar
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica