Tryggingastofnun
lifeyrisarid-2011

Lífeyrisárið

Þessi mynd útskýrir lífeyrisárið, ferli umsóknar hjá Tryggingastofnun,  frá því að umsókn um elli- eða örorkulífeyri berst.

Ef smellt er á hluta myndarinnar  kemur fram skýringartexti á hverju þrepi í ferlinu. 


Ágúst

Réttindi liðins árs

Inneignir greiddar út

Inneignir eru greiddar út í byrjun ágúst eftir endurreikning. 

- Lesa nánar um greiðslu inneigna

Skuldir innheimtar

Í endurreikningi getur myndast ofgreiðsla ef tekjur samkvæmt skattframtali eru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun.

Samkvæmt meginreglu ber lífeyrisþegum að  endurgreiða ofgreiðslur innan 12 mánaða frá því að þær verða til.  Ef hægt er að koma við frádrætti af greiðslum þá er það gert, annars eru sendir rafrænir greiðsluseðlar í heimabanka. Mögulegt er að semja um annað greiðslufyrirkomulag.  

- Lesa nánar um innheimtu skulda

- Mínar síður.


Áramót

Réttindi núverandi árs

Græna umslagið

Græna umslagið er sent til lífeyrisþega um hver áramót.

Í því er tillaga að tekjuáætlun og greiðsluáætlun fyrir komandi ár.  Hvort tveggja er aðgengilegt á Mínum síðum á sama tíma.

Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að yfirfara tekjuáætlunina og leiðrétta hana ef ástæða er til.  
Ef tekjuáætlun er leiðrétt verður send ný greiðsluáætlun sem byggir á henni.

Greiðsluáætlunina er gott að geyma á vísum stað.

Ef ofgreiðslur eru til staðar fylgir kröfuyfirlit með áætlaðri endurgreiðslu. 


- Lesa nánar um Græna umslagið.

- Lesa nánar um greiðsluáætlun

- Lesa nánar um tekjuáætlun



Eftirlit

Eftirlit með greiðslum

Tryggingastofnun ber að hafa eftirlit með greiðslum. Ef misræmi er á tekjum úr staðgreiðsluskrá  og tekjuáætlun er send út ný greiðsluáætlun til lífeyrisþega.

Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að gefa Tryggingastofnun réttar upplýsingar í tekjuáætlun.

- Lesa nánar um eftirlit með greiðslum



Sótt um örorkulífeyri

Örorkulífeyrir

Örorkulífeyrir er lífeyrir fyrir þá sem hafa skerta starfsorku samkvæmt læknisfræðilegu mati.

Sótt um örorkulífeyri

Til að fá örorkulífeyri þarf að liggja fyrir örorkumat. Læknir viðkomandi skilar til Tryggingastofnunar vottorði um örorkumat.

Auk þess þarf umsækjandi að skila til Tryggingastofnunar umsókn um örorkulífeyri og spurningalista um færniskerðingu. Þegar niðurstaða liggur fyrir fá allir umsækjendur bréf. Ef umsókn er samþykk þarf að skila tekjuáætlun og skattkorti, ef við á.

- Lesa meira um örorkulífeyri

- Vegvísir um örorkulífeyri

Tekjuáætlun gerð

Þegar örorkumat liggur fyrir þarf að skila inn tekjuáætlun. Það er áætlun umsækjanda um þær tekjur sem hann muni hafa á árinu. Á grundvelli þessarar áætlunar eru greiðslur ársins reiknaðar. Það er á ábyrgð umsækjanda að tekjuáætlun sé rétt. Allar skattskyldar tekjur hafa áhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun.

- Nánar um tekjuáætlun


Júlí

Réttindi liðins árs

Endurreikningur

Að lokinni álagningu skattayfirvalda vegna fyrra árs, eru greiðslur sem lífeyrisþegar fengu bornar saman við tekjur í staðfestu skattframtali.

Endurreikningurinn tryggir að allir fá greiddar réttar greiðslur miðað við tekjur.

Komi í ljós að of lágar bætur hafi verið greiddar greiðir Tryggingastofnun viðkomandi það sem upp á vantar.

Komi hins vegar í ljós að of háar bætur hafi verið greiddar myndast krafa sem Tryggingastofnun innheimtir.

Hægt er að kæra niðurstöðu endurreiknings til úrskurðarnefndar almannatrygginga.

- Lesa nánar um endurreikning

- Lesa nánar um málsmeðferð og kærur

- Beiðni um frádrátt af bótum

- Beiðni um dreifingu tekna

- Boðgreiðslur vegna ofgreiddra bóta



Sótt um ellilífeyri

Ellilífeyrir

Réttur til ellilífeyris myndast við 67 ára aldur. Sá sem náð hefur þeim aldri og hefur búið hér á landi í minnst þrjú ár á aldrinum 16-67 ára getur átt rétt á greiðslu ellilífeyris.

Tryggingastofnun sendir öllum sem verða 67 ára bréf þar sem bent er á mögulegan rétt til ellilífeyris.

- Nánar um ellilífeyri

-Vegvísir um ellilífeyri

Sótt um ellilífeyri

Þegar sótt er um ellilífeyri þarf að skila inn umsóknareyðublaði um ellilífeyri og tekjuáætlun.
Sé gert ráð fyrir að vera áfram á vinnumarkaði eftir að 67 ára aldri er náð getur borgað sig að fresta því að sækja um ellilífeyri hjá Tryggingastofnun.

- Hvernig er sótt um ellilífeyri?

- Umsóknareyðublað um ellilífeyri

Tekjuáætlun gerð

Tekjuáætlun er áætlun umsækjanda um þær tekjur sem hann mun hafa á árinu. Á grundvelli þessarar áætlunar eru greiðslur ársins reiknaðar. Það er á ábyrgð umsækjanda að tekjuáætlun sé rétt. Allar skattskyldar tekjur hafa áhrif á greiðslur frá Tryggingastofnun.

- Nánar um tekjuáætlun

Lífeyrir reiknaður

Allar skattskyldar tekjur hafa áhrif á útreikning lífeyris og tengdra greiðslna.  Lífeyrir er reiknaður út frá tekjuáætlun lífeyrisþega.

Tekjur sem eru undir frítekjumörkum hafa ekki áhrif á útreikning lífeyris. Alltaf er miðað við árstekjur.

Fyrsta árið er þó  reiknað með tekjum frá þeim degi sem taka lífeyris hefst.

Bráðabirgðaútreikning lífeyrisgreiðslna er hægt að gera í reiknivél lífeyris.

Llífeyrisþegar  geta einnig notað sitt svæði á Mínar síður til að fá yfirlit yfir áætlaðar greiðslur.

Útreikningur lífeyris og tengdra bóta - janúar 2012



 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica