Tryggingastofnun
Fréttir

Vönduð tekjuáætlun, réttari greiðslur

19.11.2010

Nú geta lífeyrisþegar skoðað og lagað tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun 2011 inná Tryggur – Mínar síður.

Hægt er að breyta tekjuáætlun vegna janúargreiðslu frá 19. nóvember – 9. desember. Í janúar sendir Tryggingastofnun lífeyrisþegum tillögu að tekjuáætlun og greiðsluáætlun fyrir árið 2011 heim í pósti.

Mikilvægt er að lífeyrisþegar leiðrétti tekjuáætlunina ef þörf er á. Það er einfalt og þægilegt að skoða og breyta tekjuáætlun á Tryggur - Mínar síður.  Nota þarf veflykil RSK við innskráningu. Ef veflykill hefur glatast er hægt að nálgast nýjan veflykil á næstu skattstofu eða fá hann samstundis í heimabanka. Ef það hentar geta lífeyrisþegar veitt öðrum umboð til þess að sinna sínum málum á Tryggur – Mínar síður. Umboð er veitt á Tryggur – Mínar síður.

Hægt er að fá tekjuáætlunina senda heim á pappír ef þess er óskað með því að hafa samband við Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar eða umboð um land allt.

Tekjuáætlun er forsenda greiðslna Tryggingastofnunar og það er á ábyrgð lífeyrisþega að hún sé vönduð. Rétt tekjuáætlun kemur í veg fyrir óþægindi sem skapast þegar lífeyrisþegar fá ekki réttar greiðslur.

Við gerð tekjuáætlunar er ágætt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Allar skattskyldar tekjur hafa áhrif.
  • Fjármagnstekjur breytast oft á milli ára.

Athugið að um tillögu að tekjuáætlun er að ræða og á ábyrgð lífeyrisþega að leiðrétta ef við á.

Starfsfólk þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar og umboða um land allt veita fúslega ráðgjöf og aðstoð við gerð tekjuáætlunar.

Um tekjuáætlun


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica