Fleiri leiðrétta tekjuáætlun
Fleiri lífeyrisþegar breyta nú tekjuáætlunum en síðustu ár og ánægjulegt er að sjá að sífellt fleiri nota sér rafræna þjónustu Tryggingastofnunar til þess.
Allar greiðslur til lífeyrisþega eru tekjutengdar og eru reiknaðar út frá tekjuáætlun. Þar sem um áætlun tekna er að ræða er erfitt að hafa hana nákvæma, en því réttari sem hún, er því meiri líkur eru á því að lífeyrisþegar fái réttar greiðslur á réttum tíma. Varðandi fjármagnstekjur, sem er erfitt að spá fyrir um, er lífeyrisþegum bent á að hugsanlega geta þeir fengið aðstoð og upplýsingar hjá viðskiptabanka sínum.
Um áramót fá lífeyrisþegar senda tillögu að tekjuáætlun frá Tryggingastofnun. Áætlunin er byggð á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá og skattframtölum. Lífeyrisþegar bera ábyrgð á að fara yfir og leiðrétta áætlunina ef þess gerist þörf, enda ættu þeir að hafa bestu upplýsingarnar til þess að meta hvort áætlunin er rétt.
Þá er vert að geta þess að í ár hafa nokkrir lífeyrissjóðir lækkað greiðslur til lífeyrisþega og í sumum tilfellum leiðir það til hækkunar á greiðslum frá Tryggingastofnun, þó er það ekki í öllum tilfellum.
Þægileg leið til þess að átta sig á áhrifum breytinga er að nota reiknivél lífeyris eða á tryggur.is -mínar síður en þar er jafnframt hægt að breyta tekjuáætlun á auðveldan máta.
Myndin fyrir neðan sýnir samanburð á fjölda milli áranna 2009 – 2010.

