E 101 og E 106 vottorð
Hvað er E101?
E 101 er vottorð um hvaða löggjöf skuli gilda. Vottorðið er einungis notað á evrópska efnahagssvæðinu (EES svæðinu) og er vottorðið sönnun þess að starfsmaður falli undir íslenska almannatryggingalöggjöf meðan á erlendum starfstíma stendur.
Vottorðið er einungis gefið út á launþegann eða sjálfstætt starfandi einstaklinginn. Maki og börn eru einnig tryggð í gegnum E 101 vottorðið svo framarlega sem maki er ekki í vinnu. Nafn maka og barna koma ekki fram á E 101 vottorðinu þó svo að þau falli undir trygginguna. Nöfn maka og barna eru hins vegar skráð í tryggingaskrá Tryggingastofnunar sem heldur utan um tryggingaréttindi viðkomandi starfsmanns.
Með því að framvísa E 101 í starfslandi þá er viðkomandi starfsmaður/sjálfstætt starfandi undanþeginn því að greiða tryggingagjald til viðkomandi lands. Vottorðið á að koma í veg fyrir tvígreiðslu gjalda þannig að tryggingargjald sé einungis greitt á einum stað þar sem viðkomandi er skráður í almannatryggingar. E 101 vottorðið gæti þurft að framvísa hjá skattayfirvöldum í viðkomandi starfslandi eða hjá þeim aðila sem annast innheimtu tryggingagjalda. E 101 er gefið út á íslensku og gefa önnur EES lönd einnig út vottorð sín á sínu eigin tungumáli.
Hvað er E 106?
E 106 IS er sjúkratryggingavottorð, sem er gefið út samhliða E 101 vottorði ef starfsmaður flytur fasta búsetu sína til Íslands. Starfsmaðurinn verður að skrá sig og sína fjölskyldu hjá Sjúkratryggingum Íslands. Ef um skemmri tíma er að ræða þá getur viðkomandi einstaklingur/sjálfstætt starfandi notað evrópska sjúkratryggingakortið.
