Tímabundin dvöl í öðru landi
Flestir þeir sem dvelja tímabundið í öðru landi skipta ekki um lögheimili og halda því tryggingavernd hér á landi. Undantekningar eru t.d. námsmenn sem fara til Norðurlanda.
Námsmenn
Námsmaður sem á lögheimili hér á landi og dvelst erlendis við nám er áfram tryggður meðan á námi stendur ef hann er ekki tryggður í almannatryggingum námslandsins. Taki námsmaður upp fasta búsetu eða launavinnu í námslandinu ber honum að tilkynna slíkt til Þjóðskrár og fellur hann þá ekki lengur undir íslenska tryggingavernd.
Með námsmanni er átt við einstakling, annan en launþega eða sjálfstætt starfandi einstakling , sem er við nám eða starfsþjálfun sem lýkur með útgáfu vottorðs um menntun sem viðurkennt er af yfirvöldum.
Nám í EES löndum og Sviss (að undanskildum Norðurlöndum)
Námsmenn erlendis, utan Norðurlandanna, eiga að geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og haldið rétti sínum til almannatrygginga. Námsmenn þurfa þó að kynna sér vel reglur þess lands sem farið er til. Námsmenn og fjölskyldur þeirra eiga rétt á læknishjálp þar ef þörf krefur hjá hinu opinbera heilbrigðiskerfi viðkomandi lands í samræmi við EES reglurnar um almannatryggingar. Til að tryggja sér rétt til aðstoðar ef þörf krefur hjá heilbrigðiskerfi hins opinbera í EES landi þarf að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu.
Nám á Norðurlöndum
Þeir sem fara í nám til Norðurlandanna taka yfirleitt upp búsetu þar. Þeir falla undir almannatryggingareglur viðkomandi lands. Aðstoð er veitt samkvæmt reglum í viðkomandi landi og getur þjónusta og kostnaður verið ólík milli landa.
Nám utan EES
Námsmenn sem stunda nám í löndum utan EES og fjölskyldur þeirra geta haldið lögheimili sínu hér á landi meðan á námi stendur og haldið rétti sínum til almannatrygginga.
Ferðamenn
Þeir sem dvelja um styttri tíma erlendis án þess að taka þar upp búsetu eða hefja störf halda almennt tryggingavernd sinni á Íslandi.
