Lífeyrisþegar erlendis
Elli- og örorkulífeyrisþegar sem eru búsettir í öðru EES landi halda rétti sínum til lífeyrisgreiðslna almannatrygginga. Þetta á ekki við um ýmiss konar uppbætur og greiðslur skv. lögum um félagslega aðstoð.
Þeir eiga einnig að fá sjúkratryggingavottorð E121 hjá Tryggingastofnun og framvísa því við skráningu hjá tryggingastofnun í nýja búsetulandinu. E121 vottorðið er ekki notað ef flutt er til Norðurlandanna.
Þeir sem eiga rétt á að fá E121 vottorðið verða að vera EES borgarar, vera lífeyrisþegar á Íslandi og eiga ekki rétt á lífeyri í því landi sem flutt er til.
Þegar flutt er aftur til Íslands verður að tilkynna um það til Tryggingastofnunar sem afturkallar þá vottorð E121.
Einstaklingur sem er þegar búsettur erlendis í EES landi er hann nær lífeyrisaldri eða verður öryrki á að snúa sér til tryggingastofnunar í viðkomandi landi til að sækja um lífeyrisgreiðslur.
Greiðslur almannatrygginga falla niður við brottflutning til landa sem enginn samningur hefur verið gerður við um almannatryggingar.
