Hvað er E 101?
E 101 IS er vottorð um hvaða löggjöf skuli gilda. Vottorðið er einungis notað á Evrópska efnahagssvæðinu (EES svæðinu) og er vottorðið sönnun þess að starfsmaður falli undir íslenska almannatryggingalöggjöf meðan á erlendum starfstíma stendur. Vottorðið er einungis gefið út á launþegann eða sjálfstætt starfandi einstaklinginn. Maki og börn eru einnig tryggð í gegnum E 101 vottorðið svo framarlega sem maki er ekki í vinnu. Nafn maka og barna koma ekki fram á E 101 vottorðinu þó svo að þau falli undir trygginguna. Nöfn maka og barna eru hins vegar skráð í tryggingaskrá Tryggingastofnunar sem heldur utan um tryggingaréttindi viðkomandi starfsmanns.
Með því að framvísa E 101 í starfslandi þá er viðkomandi starfsmaður/sjálfstætt starfandi undanþeginn því að greiða tryggingagjald til viðkomandi lands. Vottorðið á að koma í veg fyrir tvígreiðslu gjalda þannig að tryggingargjald sé einungis greitt á einum stað þar sem viðkomandi er skráður í almannatryggingar. E 101 vottorðið gæti þurft að framvísa hjá skattayfirvöldum í viðkomandi starfslandi eða hjá þeim aðila sem annast innheimtu tryggingagjalda. E 101 IS er gefið út á íslensku og gefa önnur EES lönd einnig út vottorð sín á sínu eigin tungumáli.
Hvað er E 106?
E 106 IS er sjúkratryggingavottorð, sem er gefið út samhliða E 101 vottorði ef starfsmaður flytur fasta búsetu sína til starfslandsins. Starfsmaðurinn verður að skrá sig og sína fjölskyldu hjá þeim aðila sem annast sjúkratryggingar í viðkomandi landi sbr. leiðbeiningar á E 106 vottorðinu. Ef um skemmri tíma er að ræða þá getur viðkomandi einstaklingur/sjálfstætt starfandi notað Evrópska sjúkratryggingavottorðið EHIC kortið.
