Uppgjör ársins 2009
Greiðslur Tryggingastofnunar til lífeyrisþega á árinu 2009 hafa verið bornar saman við tekjuáætlanir og skattframtal fyrir sama ár. Niðurstaðan segir til um hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt út í samræmi við þann rétt sem hann hafði á árinu 2009.
Niðurstöður uppgjörs eru þegar aðgengilegar fyrir lífeyrisþega á Tryggur - mínar síður.
Ráðgjafar í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar og umboða um allt land veita upplýsingar og aðstoða eftir þörfum.

