Lífeyrisréttindi

Allir sem verða 67 ára og hafa búið og starfað á Íslandi í tilskilinn tíma fá sent bréf frá Tryggingastofnun þar sem bent er á mögulegan rétt til ellilífeyris.

Bréfinu fylgja eyðublöð fyrir umsóknir og tekjuáætlanir. Þessi blöð þarf að fylla út og senda til Tryggingastofnunar eða umboða utan Reykjavíkur.

Réttur til ellilífeyrisgreiðslna getur náð allt að tvö ár aftur í tímann, hafi ekki verið sótt um lífeyri við 67 ára aldur.

Sækja þarf um allar bætur frá Tryggingastofnun. Þó þurfa þeir sem fá örorkulífeyrisgreiðslur þegar þeir verða 67 ára ekki að sækja sérstaklega um ellilífeyri.

Athugið að sé gert ráð fyrir að vera áfram á vinnumarkaði eftir að 67 ára aldri er náð getur borgað sig að fresta því að sækja um ellilífeyri hjá Tryggingastofnun.

Ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót hækka þá um 0,5% fyrir hvern mánuð fram til 72 ára aldurs, eða að hámarki um 30%.

Nánari upplýsingar veita þjónusturáðgjafar.


Hafðu samband

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.