Hvernig er sótt um meðlag?
Sækja þarf um greiðslur á eyðublaði sem kallast „Meðlag, bráðabirgðameðlag, mæðra- og feðralaun og barnalífeyrir" og framvísa með umsókninni frumriti af meðlagssamningi eða dómi um meðlagsgreiðslur.
Ef um viðbótargreiðslur er að ræða þarf að framvísa úrskurði sýslumanns um sérstök framlög.
Vegna bráðabirgðameðlags þarf að framvísa staðfestingu sýslumanns um að faðernismál sé hafið eða staðfestingu lögmanns ef máli hefur verið vísað frá sýslumanni og viðkomandi þarf að fara með málið fyrir dómstóla.
Vegna umsóknar getur foreldri getur snúið sér til þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar Laugavegi 114 eða umboða utan Reykjavíkur.
Umsóknarferli og afgreiðslutími
Miðað við að öll gögn hafi borist er afgreiðslutími meðlags allt að sex vikur.
Gögn sem þurfa að hafa borist Tryggingastofnun:
- Umsókn
- Frumrit af samningi eða úrskurður um meðlag
