Hverjir fá aðstoð?
Hverjir fá meðlag?
Foreldri barns sem búsett er hér á landi, getur óskað eftir að Tryggingastofnun hafi milligöngu um greiðslu meðlags með barni sínu eftir að lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.
Ef barn er ófeðrað er heimilt að greiða meðlag til bráðabirgða á meðan unnið er að faðerni þess. Staðfesting sýslumanns eða lögmanns þarf að liggja fyrir um að málarekstur sé í gangi. Greiðslur eru síðan gerðar upp þegar fyrir liggur lögformleg meðlagsákvörðun.
Lögformleg meðlagsákvörðun getur verið: Staðfestur samningur eða úrskurður útgefinn af sýslumanni, dómur eða dómssátt, erlendur meðlagssamningur.
Meðlagsgreiðslur falla niður við:
- 18 ára aldur barns
- Breytingu á meðlagsskyldu foreldris þegar staðfestar upplýsingar liggja fyrir um það
- Að barn giftist
- Flutning úr landi. Undanþága getur verið veitt ef meðlag er ekki fyrirfram greitt í búsetulandi sem er innan EES.
- Beiðni meðlagsmóttakanda um stöðvun greiðslna
- Andlát barns
- Andlát meðlagsgreiðanda. Heimilt er að greiða barnalífeyri í stað meðlags við andlát foreldris.
Meðlagsmóttakanda ber að senda skriflega tilkynningu ef breyting verður á högum barnsins og greiðslur eiga að stöðvast.
