Hve mikil er aðstoðin?
Fjárhæð meðlags
Tryggingastofnun greiðir eingöngu einfalt meðlag og er fjárhæðin sú sama og greiðslur barnalífeyris.
Ef meðlagsákvörðun kveður á um hærri greiðslur semja foreldrar um með hvaða hætti mismunur er greiddur.
Upphaf greiðslna
Heimilt er að greiða meðlag eitt ár aftur í tímann ef meðlagsákvörðun er ekki eldri en tveggja mánaða frá því að umsókn er lögð inn. Ef meðlagsákvörðun er eldri en tveggja mánaða er greitt frá umsóknarmánuði.
Greiðslur geta ekki hafist fyrr en frá þeim tíma sem skilnaður/sambúðarslit og lögheimilisbreyting hefur tekið gildi samkvæmt Þjóðskrá. Einnig þarf barn að vera búsett hjá meðlagsmóttakanda.
Síða yfirfarin/breytt 27. janúar 2012
