Meðlag
Meðlag greiðist að öllu jöfnu þar til barn nær 18 ára aldri. Við 18 ára aldur barns getur barnið sótt um framlag vegna menntunar.
Meðlag telst ekki til bóta almannatrygginga. Innheimtustofnun sveitafélaga sér um að innheimta greiðslur hjá meðlagsskyldu foreldri og endurgreiðir Tryggingastofnun.
Viðbótargreiðslur meðlags
Hægt er að sækja um viðbótargreiðslur vegna sérstakra útgjalda svo sem vegna skírnar, fermingar, tannlækninga, eða af öðru sérstöku tilefni. Til að greiðslur geti hafist þarf að liggja fyrir úrskurður sýslumanns eða staðfestur samningur um greiðslurnar.
Sýslumaður getur einnig úrskurðað að föður barns beri að greiða móður þess framfærslueyri í þrjá mánuði í kringum fæðingu barnsins ef sérstaklega stendur á. Veikist móðirin vegna meðgöngu eða fæðingar má úrskurða að föður beri að greiða framfærslueyri í allt að níu mánuði.
Greiðsla meðlags við flutning milli landa
Flytji umsækjandi meðlags til Íslands þarf hann að leggja fram með umsókn sinni staðfestingu um greiðslur í fyrra búsetulandi ásamt meðlagssamningi sem þær greiðslur byggðust á.
Ef móttakandi meðlagsgreiðslna flytur frá Íslandi ber honum að tilkynna það til Tryggingastofnunar og getur hann þá tekið með sér gögn sem hann framvísar í nýju búsetulandi ásamt tilkynningu um stöðvun greiðslna hér á landi. All flest ríki innan EES greiða meðlag fyrirfram. Þó eru nokkur sem gera það ekki og er þá heimilt að greiða meðlag áfram hér á landi ef meðlagsgreiðandi er búsettur á Íslandi.
Frumrit úrskurðar/samnings þarf að fylgja með umsókn.
