Málsmeðferð og kærur

Málsmeðferð og kærur

Málsmeðferð.

Þeir sem telja sig eiga rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun þurfa að sækja um þær og er það í flestum tilvikum gert á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin hefur útbúið. Umsækjendum er skylt að veita stofnuninni og umboðum hennar allar þær upplýsingar sem þörf er á til að meta hvort hann eigi rétt á greiðslum og hvaða rétt hann eigi.

Að sama skapi er starfsfólki Tryggingastofnunar og umboða skylt að kynna sér til hlítar aðstæður þeirra sem sækja um og eiga rétt á greiðslum frá stofnuninni. Einnig er starfsfólki skylt að upplýsa viðskiptamenn um rétt þeirra samkvæmt lögum um almannatryggingar og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar.

Allar umsóknir eru afgreiddar eins fljótt og mögulegt er. Greitt er frá og með 1. degi næsta mánaðar eftir að skilað hefur verið inn umsókn ásamt tilheyrandi gögnum.

Kærur.

Úrskurðarnefnd almannatrygginga tók til starfa 1. júlí 1999. Kærumál vegna afgreiðslu Tryggingastofnunar koma til úrskurðar hjá nefndinni en í henni eru þrír menn skipaðir til sex ára í senn, tveir lögfræðingar og einn læknir.

Úrskurðarnefnd er sjálfstæð og verður úrskurðum hennar ekki skotið til annarra stjórnvalda.

Ef viðskiptavinur er ósáttur við afgreiðslu sem hann hefur fengið hjá Tryggingastofnun hefur hann rétt til að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar almannatrygginga ef ágreiningur varðar grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta eða greiðslna.  Sama á við um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu þeirra.  Kærufrestur er 3 mánuðir frá afgreiðslu stofnunarinnar.


Úrskurðarnefnd almannatrygginga er til húsa í  Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu 101 Reykjavík . Opnunartími er 9.00 til 15.00.

Síða yfirfarin/breytt 20.03.2013



Barnafjölskyldur
 

Þjónustuleiðir






Þetta vefsvæði byggir á Eplica