Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar getur verið greiddur til ungmennis á aldrinum 18-20 ára sem er búsett á Íslandi ef annað foreldri eða báðir eru látnir, ennfremur ef annað foreldri eða báðir eru lífeyrisþegar.
Einnig er heimilt að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ef meðlagsskylt foreldri fær úrskurð sýslumanns um að vegna efnaleysis sé því ekki gert að greiða meðlag.
Barnalífeyrir er frá 1. janúar 2013 kr. 25.175.
Afgreiðslutími umsókna er 6-8 vikur eftir að umsókn og öllum fylgigögnum hefur verið skilað inn.
Þeir sem þegar hafa fengið greiddan barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar verða að skila inn skólavottorði í janúar / ágúst til að greiðslur stöðvist ekki. Á skólavottorðum frá fjölbrautaskólum þarf að koma fram einingafjöldi.
Hver eru skilyrði fyrir greiðslu?
Skilyrði er að ungmenni sé í fullu námi í viðurkenndum framhaldsskóla og að námið sé hans aðalstarf. Fullt nám er um 17 einingar á önn en heimilt er að víkja frá þessu skilyrði ef um er að ræða hægfara nám eða sérstaka erfiðleika nemandans. Nám þarf að taka a.m.k. sex mánuði ár hvert.
Ef um er að ræða óreglulegt nám eða námskeið sem jafngildir viðurkenndu námi er námstíminn reiknaður í kennslustundafjölda á almanaksárinu og telst þá sex mánaða nám samsvara 624 kennslustundum. Brot úr mánuði telst heill mánuður. Tryggingastofnun getur frestað afgreiðslu menntunarbarnalífeyris þar til sex mánaða námstíma er náð.
Ef nemandi er einnig í launuðu starfi eða launuðu iðnnámi fellur heimild til þessara greiðslna niður þegar mánaðartekjur eru hærri en sem nemur sjöföldum barnalífeyri. Ef ekki er um iðnnám að ræða þarf að færa sönnun á að launað starf sé unnið að jafnaði utan hefðbundins skólatíma. Menntunarbarnalífeyrir er aðeins greiddur ef umsækjandi á lögheimili á Íslandi.
Hvernig er sótt um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar?
Ungmenni sækir sjálft um á eyðublaði sem kallast „Umsókn um framlag vegna náms og barnalífeyrir vegna náms sem nálgast má hér á vefnum eða í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar, Laugavegi 114 og umboðum hennar um land allt.
Hvaða gögnum þarf að skila inn?
- Staðfesting á skólavist. Upplýsingar um einingafjölda náms þarf að koma fram nema ef um bekkjarkerfi sé að ræða þá þarf aðeins staðfestingu á skólavist.
- Þegar sótt er um framlengingu greiðslna þarf ekki að skila inn nýrri umsókn. Nóg að senda staðfest gögn frá skóla um námsframvindu síðustu annar og skólavist á komandi önn.
- Hafi sýslumaður hafnað úrskurði um meðlag vegna efnaleysis eða ef ekki hefur tekist að hafa upp á foreldri er sá úrskurður einnig sendur með umsókn.
- Hægt er að sækja um undanþágu frá fullu námi ef nemandi getur ekki stundað fullt nám. Staðfesting frá námsráðgjafa þarf að fylgja með.
- Leggja þarf fram dánarvottorð ef sótt er um vegna andláts foreldris og hinn látni var ekki búsettur hér á landi og gögn hafa ekki verið lögð fram áður.
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar fellur niður:
- Ef ungmennið flytur úr landi.
- Ef ungmennið verður örorkulífeyrisþegi.
- Ef foreldri er ekki lengur lífeyrisþegi.
- Ef tekjur eru yfir viðmiðunarmörkum.
Síða yfirfarin/breytt 25.01.2013
