Greiðslur til foreldra í námi
Greiðslur til foreldra í námi
Foreldri í námi getur átt rétt á greiðslum, í allt að 3 mánuði, ef hlé er gert á námi vegna alvarlegra veikinda eða fötlunar barns.
Skilyrði fyrir greiðslum er:
- Að foreldri hafi verið í 75-100% námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum áður en barnið greindist. Undanþágu má veita ef umsækjandi:
– Var í samfelldu starfi í 6 mánuði áður en nám hófst.
– Hefur lokið einnar annar námi og verið í vinnu frá því námi lauk,
nám + vinna a.m.k. 6 mánuðir.
- Að foreldri geri hlé á námi í a.m.k eina önn í viðkomandi skóla til að annast barnið.
- Að foreldri hafi átt lögheimili hér á landi síðustu tólf mánuði áður en barn greindist.
– Undanþágu má veita ef foreldri hefur þurft að flytja lögheimili sitt tímabundið
vegna náms erlendis eftir að hafa átt lögheimili hér á landi samfellt í a.m.k.
fimm ár fyrir flutning og flytur aftur hingað til lands þegar barnið greinist með
alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun.
- Að foreldri fari með forsjá barns eða hafa sameiginlega forsjá ásamt hinu foreldrinu þegar barn greindist með alvarlegan sjúkdóm eða fötlun. Forsjárlaust foreldri getur átt rétt til greiðslna liggi fyrir samþykki forsjárforeldris fyrir því að forsjárlausa foreldrið annist barnið þann tíma sem greiðslur standa yfir. Maki, sambúðarmaki eða samvistarmaki foreldris sem fer með forsjána getur átt rétt til greiðslna liggi fyrir samþykki beggja kynforeldra barns enda hafi hjónaband, skráð sambúð eða samvist staðið yfir lengur en eitt ár. Í tilvikum þegar annars kynforeldra nýtur sannanlega ekki við er samþykki þess foreldris sem fer með forsjána nægjanlegt.
- Að foreldri og barn eigi lögheimili hér á landi þann tíma sem greiðslur eru inntar af hendi.
Síða yfirfarin/ breytt 14. 09. 2011
